Eining - 01.06.1971, Blaðsíða 11
EINING
11
ar,“ eins og' Káinn orðaði þetta eitt sinn
um ræður þar vestanhafs. Meðan á
þessu stóð, skemmtu börnin sér við
dans og leiki í samkomusal hússins.
Þegar Unglingareglan varð 60 ára,
árið 1956, fékk blaðið Eining Ingimar
Jóhannesson kennara, sem þá var
gæzlumaður unglingastarfs Stórstúku
íslands, til að skrifa um Unglingaregl-
una og birtist sú grein í júníblaðinu
1956, fróðleg grein, fullar tvær blað-
síður. Geta þeir, sem halda blaðinu sam-
an nú rifjað upp þá grein, ef þeir vilja.
Þar segir Ingimar m. a. orða eftirfar-
andi:
„Markmið unglingadeildanna var
fyrst og fremst að veita yngri kynslóð-
inni fræðslu um hugsjónir Góðtempl-
arareglunnar, sem eru bræðralag allra
manna, efling bindindis og útrýming
áfengisnautnar. Einkunarorð hennar
eru trú, von og kærleikur. Unglinga-
reglunni voru valin einkunnarorðin:
Sannleikur, kærleikur, sakleysi. Börnin
lofuðu að forðast áfengisnautn, tóbaks-
naunt og peningaspil. Þau skildu og
forðast ljótt orðbragð, en temja sér
háttprýði, hjálpsemi gagnvart félögun-
um, hlýðni og skyldurækni í skólum og
heimilum. Þetta er markmiðið, sem
stefnt er að með unglingareglustarf-
inu.“
Um þetta sagði þá Hannes J. Magn-
ússon, sá ágæti skólamaður og æsku-
lýðsleiðtogi, eftirfarandi orð:
„Störf þeirra er að vísu hvorki hægt
að mæla né meta, en ég fullyrði, að
60 ára starf Unglingareglunnar á Is-
landi hefur markað dýpri spor í menn-
ingu þjóðarinnar en nokkurn grunar.
Auk þess sem Unglingareglan hefur
bjargað óteljandi mönnum frá hættum
eiturnautnanna, hefur hún verið hinn
bezti skóli í félagslegum efnum, sem
völ hefur verið á í þessu landi. ... Ég
fullyrði, að þjóðin stendur í mikilli
þakkarskuld við þennan yfirlætislausa
og hljóða féagsskap.“
Orð þessara tveggja .skólamanna eru
góð staðfesting á því, sem ég var búinn
að segja framar í þessari grein, sem
sannfæringu mína um uppeldisgildi
barnastúknanna. Að því var ég sjónar-
vottur árum saman.
Núverandi gæzlumaður unglinga-
starfs stórstúkunnar er Hilmar Jóns-
son, bókavörður í Keflavík. Næstur
á undan honum var Sigurður Gunnars-
son, kennari, um níu ára skeið, að
minnsta kosti. Þar var sívökull áhuga-
og eljumaður að verki, sem vann mikið
og gott starf. Eitthvað svipað mætti
segja um ýmsa fyrirrennara hans í
þessari stöðu. Hafi þeir allir beztu
þakkir fyrir góð og óeigingjörn störf,
og blessun fylgi árangrinum og fram-
haldinu.
Ekki get ég stillt mig um að geta
þess, að í þessu afmælishófi vildi
Æskan nr. 1 kjósa Finnboga Júlíusson
heiðursfélaga sinn, því að hann hefur
unnið mikið verk fyrir æskulýðsstarf-
semina og bindindismálið yfirleitt, en
hann var nægilega hlédrægur til að af-
þakka þetta, að minnsta kosti að þessu
sinni. — Þetta er nú orðið mikið mál
og hefði þó verið gaman að segja fleira
um barnastúkustarfið.
Þá hugsjónir fæðast, fer
hitamagn um önd,
þá hugsjónir sigra, fer þrumurödd
um lönd,
því gæt þess vel, sem göfgast
hjá þér finnst,
og glæddu vel þann neista, sem
liggur innst.
Svo kvað Jón Trausti, og það er
þetta hitamagn, sem við þörfnumst og
þráum.
P. S.
Þjóðsöngur Canada
Gjarnan mættu íslendingar kunna
þjóðsöng Canada, því að svo marga
Islendinga hefur það mikla land fóstrað.
Fyrsta stefið er á þessa leið:
0, Canada, our home and native land,
True patriot love in all thy sons
command.
With glowing heart we see thee rise
The True North strong and free.
And stand on guard, o, Canada,
We stand on guard for thee.
0, Canada. Glorious and free.
0, Canada, we stand on guard for thee.
0, Canada, we stand on guard for thee.
Burt með miðsterka ölið
Slík er krafa sterkra æskulýðssam-
taka í Svíþjóð og var hún samþykkt á
þingi þeirra. Þetta unga fólk er búið
að sjá afleiðingarnar af þambi mið-
sterka ölsins og krefst þess nú, að eitt-
hvað róttækt verði aðhafzt í þessu máli.
TILKYNNING
Einingin hefur verið beðin að flytja
eftirfarandi:
I tilefni af 75 ára afmæli stúkunnar
ARBEIT nr. 29 í Olten (Sviss), efnir
stúkan til alþjóðlegs bréfakvölds 6.
nóv. 1971.
Er þess vænzt, að bréf, bréfkort og
kveðjur berist frá góðtemplarastúkum
hvaðanæfa að úr heiminum. Myndi það
þakksamlega þegið og þakkað.
Utanáskrift er:
Br. Robert Liisher
Dorfstr. 197,
CH 4612 Wangen bei Olten,
Schweiz.
Hjálparstarf
Gott er aðra að gleðja,
góðverk bezt að kunna,
sælt er að fá að seðja
soltna, litla munna.
P. S.
Islenzk þýðing.
0, Canada, vor fagra fóstur jörð,
um fremd og lán þitt glöð vér
stöndum vörð.
Vor hjartans gleði hefð þín er,
þú hrausta, frjálsa þjóð.
Á verði vak, ó, Canada,
þér vígjum líf og blóð.
0, Canada, vor fagra fósturjörð,
um fremd og lán þitt glöð vér
stöndum vörð.
Um fremd og lán þitt glöð við
stöndum vörð.
Hreinsun
Hreinsið þið loftið
og hreinsið þið sjó,
hreinsið af mengun
sérhverja kró,
en hreinsið þó umfram allt
hugarfar manna,
og helgið það göfgi,
því fagra og sanna.
P. S.