Okkar á milli - 01.01.1987, Blaðsíða 12

Okkar á milli - 01.01.1987, Blaðsíða 12
NÍU LYKLAR, Nýtt smásagnasafn eftir Ólaf Jóhann Ólafsson, býðst nú Veraldarfélögum Lyklar Ólafs Jóhanns Olafssonar ljúka upp dyrum að tilfinningalífi hversdagsmannsins Lítilmagninn, einstæðingurinn, utangarðsmaðurinn, leitandi ungl- ingurinn, konan aðbaki manninum: Nafnlaus almúginn. Allt áþettafólk sér sínar eigin tilfinningar, sína sögu, óskir og þrár, harma, örvæntingu og gleðistundir. Hinum nafnlausa er þó sjaldnast gefinn gaumur. Á frið- lausum stundum í hraða og streitu fjölmiðlaaldar situr sjálfsrýnin og eig- in órói í öndvegi — ásamt með yfirborðsinnliti í líf fræga fólksins og misvitra stjórnun þess á hinum sem heima sitja og „skipta ekki máli.“ í Níu lyklum Ólafs Jóhanns Ólafssonar eru höfð hausaskipti á þessari heimsmynd. Þar er með hávaðalausum og varfærnislegum hætti opnað- ar gáttir að hugsunum, tilfinningum og þrám þeirra sem utan eigin lífs hafa hvorki heimilisfang né heiti. Ólafur Jóhann raðar saman brotum af örlögum þessa fólks og undirstrikar um leið að lífið býr í hverjum og einum, óháð stað og stund; ástir og örvæntingar eru síst veikari meðal þeirra sem aldrei bera þær á borð. Nærfærnislegur og þroskaður stíll í Níu lyklum eru níu smásögur, innbyrðis ótengdar, en þó allar skrifaðar af sömu natni og vandvirkni. Mál sagnanna er kjarngott og fallegt, stíll Ólafs nærfærnislegur og furðu þroskaður af svo ungum höfundi að vera. Alúðleiki við tungumálið og nostursamleg vinnubrögðin í þessum sögum minna óneitanlega á föður höfundarins, Ólaf Jóhann Sigurðs- son skáld og er það ekki leiðum að líkjast. Hann á það og sameiginlegt með föður sínum að nota náttúrulýsingar og táknfræði af mikilli íþrótt. Aðlaðandi og afslappandi lestur í einfaldleika sínum og ljóðrænni hógværð eru sögur Ólafs Jóhanns Ólafssonar í senn aðlaðandi og afslappandi lestur. Þær eru fullar af hlýju og meðlíðan og minna okkur á að manneskjan er allsstaðar hin sama en þó búa í hverju brjósti mikil einstaklingsbundin örlög sem aðrir fá aldrei skilið til fulls — enda flestir of sjálfsuppteknir til að leggja sig eftir því. Á þessi mikilvægu sannindi bendir Ólafur Jóhann í bókinni Níu lyklar, sem er fyrsta bók höfundar. Góð meðmæli Fjölmargir lásu Níu lykla Ólafs Jóhanns Ólafssonar yfir í handriti. 1 þeim hópi er að finna einhverja ágætustu rithöf- unda þjóðarinnar og aðra ótvíræða smekkmenn á íslenskt mál og íslenskar bókmenntir. Fóru þeir undantekningarlaust lofsamlegum orðum um sögur Ólafs, kváðu vinnubrögð hans sérstaklega snyrtileg og bókina í heild einkar þroskað byrj- andaverk. Ummæli þessara manna eru vissulega bestu með- mælin. í Sviðsljósi, þætti Jóns Óttars Ragnarssonar, lýsti hann því yf- ir að Níu lyklar væri besta verk nýs höfundar sem út hefði komið mörg undanfarin ár. Jafnframt voru ummæli gagnrýn- enda fyrir jólin mjög lofsamleg um þessa hrífandi bók. Nr.: 1475 Venjulegt verð: 1.396.- kr. Klúbbverð: 1.256.- kr. Svarseðill (Einnig er hægt að panta/afpanta allan sólarhringinn í síma 29055) Ég óska að greiðsla verði ávallt □ / núna □ skuldfærð á Visa □ Eurocard □ Gildistími: □ □ / □□ Kort nr. Þeir sem skipt hafa um heimilisfang fylli út þennan reit: Heimili:_________________________________Sími: ----------- Póstnr.: ______________Staður: --------------------------- Getraun barna 2. Vinsamlegast sendið mér eftirfarandi aukatilboð: (setjið 1,2,3 o.s.frv. fyrir pantað magn) 1459 1466 1472 1460 1467 1473 _ 1461 1468 1474 1462 1469 4050 1463 1470 3080 1464 1471 1475 1465 Þeir sem ekki vilja setji kross hér □ bók mánaðarins

x

Okkar á milli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Okkar á milli
https://timarit.is/publication/846

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.