Okkar á milli - 01.12.1987, Page 4

Okkar á milli - 01.12.1987, Page 4
Kæru félagsmenn! Ég vil byrja á því að óska ykkyr öllum gleðilegra jóla. Jólablaðið hjá okkur í ár er svo yfirfullt af spennandi tilboð- um á góðu verði að allir ættu aö geta fundið jólagjafir við hæfi. Fyrst vil ég nefna mánaðarbókina sem er ein af perlum íslenskra bók- mennta enda önnur skáldsaga sem út kom á íslandi, samkvæmt heimild- um frá Landsbókasafninu. Bókin fjallar um íslenskt samfélag á 19. öld: baráttu fátæklinga við andsnúin yfirvöld og mannleg samskipti þess tíma. Mannamunur hefur verið gefin út alls fjórum sinnum (fyrst 1872) og ávallt selst upp og hefur hún verið ófánleg síðan 1961 þartil nú. Það er því okkur mikið ánægjuefni að geta boðið hana sem bók desembermán- aðar áður en hún fer á almennan markaö. Af öðrum bókatilboðum vil ég nefna bókina um Grímsá ásamt alm- anaki, íslandseldana ásamt alman- aki fyrir alla sem hafa áhuga á land- inu okkar, Ijóðmæli Jónasar Hall- grímssonar sem ættu að vera til á hverju heimili, Nýju Fjölfræðibókina sem börn á öllum aldri munu hafa ómælt gaman af, að ógleymdum barnabókapakkanum sem mun al- veg örugglega koma sér vel fyrir margar fjölskyldur. Af öðrum tilboðum vil ég nefna grafíkmyndina sem Rut Rebekka Sigurjónsdóttir útbjó sérstaklega fyrir Veröld, því hér er á ferðinni sér- stætt verk eftir mikilsmetna listakonu og það á mjög góðu veröi. Plötutil- boðin ættu aö gleðja alla þá sem hafa áhuga á tónlist því að nú eru í boði margar af þeim plötum sem eiga eftir að verða hvað vinsælastar um jólin. Nú ekki má gleyma bað- sloppunum, handklæðunum, bað- línunum, sængurfötunum, jóladúk- unum, ostahnífunum og fiskihnífa- pörunum, því hér eru á ferðinni ein- staklega fallegar og vandaðar vörur á lægra verði en finnst annars stað- ar. Gleðileg jól Með bestu kveðjum, v»v*»cLo fVC. v Kristín Björnsdóttir framkvæmdastjóri ■H Almanak Háskólans 150 ára Veröld býður félagsmönnum sínum að eignast Almanak Háskólans á hagstæðu verði, en það mun vera elst þeirra rita, sem gefin eru út hér á landi, þegar Skírnir er frátalinn. Almanakið kemurnú út í 150. sinn. Hafnarárin Fyrsta almanakið kom út 1837, en fyrstu 86 árin var það gefið út í Kaupmannahöfn á vegum Hafnarháskóla, sem svo lengi var háskóli íslendinga. Fyrstu árgangarnir voru í mjög litlu broti og hafa gengið undir nafninu ,,kubbar“ eða ,,stubbar“. Alman- akið var í upphafi sniðið eftir danska alm- anakinu, sem er elst almanaka á Norður- löndum, en það á aftur rætur að rekja til þýskra almanaka. Myndir Thorvaldsens Umgerðin sem prýtt hefur forsíðu íslenska almanaksins síðan 1861 er einnig á for- síðu þess danska. í hornunum má sjá hin- ar þekktu árstíöamyndir Bertels Thorvald- sens, en hvort hann hefur teiknað umgerð- ina sjálfa er ekki vitað. Allar heimildir um uppruna hennar virðast nú glataðar. Almanak Þjóðvinafélagsins Með útkomu almanaks fyrir árið 1923 verða tímamót í sögu þess, því að þá fær- ist útreikningur og útgáfa þess inn í landið. Háskóli íslands hefur alla tíð annast út- reikningana, en Hið íslenska þjóðvinafélag annaðist útgáfuna, þar til nú. Nauðsynleg handbók Saga almanaksins er löng og merkileg, en verður ekki rakin hér. En félagsmönnum Veraldar skal að lokum bent á, að Alman- ak Háskólans er nauðsynleg handbók öll- um þeim, sem vilja vita um flóð og fjöru, tunglið og ótalmargt fleira. Nr.: 1650 Fullt verð: 315 kr. Okkar verð: 275 kr. 4

x

Okkar á milli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Okkar á milli
https://timarit.is/publication/846

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.