Okkar á milli - 01.12.1987, Page 7

Okkar á milli - 01.12.1987, Page 7
Vegleg jólagjöf á einstöku verði Myndlist á okkar dögum Nr.: 1653 Fullt verð: 2.250 kr. Okkar verð: 1.795 kr. Veröld býöur nú hina miklu Nútíma lista- sögu Fjölva á ótrúlega hagstæöu verði fyr- ir jólin. Hér er á ferðinni alveg einstök bók og óvenju glæsleg; á sjötta hundrað síður að stærð í stóru broti með yfir 370 litmynd- um. Fjársjóöur Nútíma listasaga Fjölva er sannkallaður fjársjóður þeim sem unna listum eða vilja fræðast um hina miklu list nútímans. Les- andanum er boðið í stórkostlega könnun- arferð um hugarlendur hinna merkustu listamanna okkar tíðar. Þarna eru verk eftir alla meistara myndlistarinnar á okkar dög- um: Paul Klee, Paul Gauguin, Vincent van Gogh, Pablo Picasso, Salvador Dali - og íslendinginn Erró, svo að örfá nöfn séu nefnd. Fegursta bókin Valtýr Pétursson sagði í ritdómi í Morgun- blaðinu: „Líklegast er þessi bók, sem ég er að rita hér um, ein fegursta bók, sem komið hefur hér á markað um lengri tíma. Hún er auk þess afar þörf fyrir þekkingu og menn- ingu okkar. Þarna er nútíminn lagður fyrir mann á þann hátt, að enginn getur lengur sagt með sanni, að hann hafi ekki haft að- gang að því, sem gert hefur verið í listum um víða veröld.“ Salatspaðar og matreiðslubók Salatspaðar eru eitt af því sem oft gleymist að kaupa, og auðvitað uppgötvast þaö ekki fyrr en rétt áður en hátíðlegur málsverður á að hefjast. Hér gefst tækifæri til að koma í veg fyrir óþægindi af þeim sökum. Við bjóð- um félagsmönnum tvo salatspaða úr ryð- fríu eðalstáli frá Vestur-Þýskalandi. Og með í kaupunum fylgir matreiðslubókin Léttirog Ijúffengirréttir, sem BáraMagnús- dóttir þýddi og staðfærði. Nr.: 2032 Okkar verð: 730 kr. 7

x

Okkar á milli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Okkar á milli
https://timarit.is/publication/846

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.