Okkar á milli - 01.12.1987, Page 8

Okkar á milli - 01.12.1987, Page 8
Jack Nicklaus fer á kostum Nr.: 1654 Fullt verð: 550 kr. Okkar verð: 495 kr. Bókin Má gefa yður ráð? er eftir Jack Nicklaus, sem er einn þekktasti golfleikari okkar tíma. Þetta er vinsæl bók, sem hefur verið endurprentuð oft, enda er hún mjög aðgengileg og prýdd skemmtilegum skýr- ingateikningum. Erfið íþrótt í formála segir Jack Nicklaus meðal ann- ars: ,,Þar sem augljóst er, að golf er hreint ekki auðveldust íþrótta, tel ég mig hafa fulla ástæðu til að koma á framfæri þeim kenningum og lögmálum, sem leikur minn hefur grundvallast á, allt frá þeirri stundu, er ég hóf golfleik sem tíu ára snáði í Scioto golfklúbbnum í Columbus í Ohio... Krefst þjálfunar Golfleikur krefst þjálfunar, íhugunar og réttrar útfærslu. Sá tími, sem þið verjið til lestrar og könnunar ráðlegginganna, sem þessi bók reifar, gerir ykkur ekki að golf- meisturum í einu vetfangi. Ég er þó sann- færður um, að þig getið hagnýtt ykkur kenningar þessarar bókar.“ Má b jóða þér í veiðferð? Með því að fá í hendur bókina Grímsá, drottning laxveiðiánna er lesendum í raun- inni boðið í skemmtilega veiöiferð í Grímsá og Tunguá í Borgarfirði. Þeir munu njóta þess í máli og myndum að kynnast þess- um frægu laxveiðiám, og ef þeir munu ein- hvern tíma fá tækifæri til að veiða í þeim, kemur lestur bókarinnar að góöu gagni. Stemning og fróðleikur Höfundar bókarinnar eru tveir: Björn J. Blöndal og Guðmundur Guðjónsson. Björn J. Blöndal er kunnur rithöfundur og hefur skrifað margar snjallar bækur um dýr, veiðiskap og útilíf. Sagnaþættir hans og frásagnir líkjast mjög smásögum. Björn er upp á sitt besta í þessari bók, og lýsing hans á Grímsá er í senn hugljúf og eftir- minnileg. Saman við stemningu Björns J. Blöndals blandast svo margs konar annar fróðleikur, sem Guðmundur Guðjónsson hefur tekið saman. Þekktir veiðimenn Guðmundur Guöjónsson hefur einnig átt viðtöl við nokkra þekkta veiöimenn. Þeir sem segja frá reynslu sinni af Grímsá eru Steingrímur Hermannsson, Kristján Fjeld- sted, Sigurður Fjeldsted, Viðar Pétursson, og auk þess segir Sturla Guðbjarnarson frá leyndardómum Tunguár. Þetta er bók sem veiðimenn mega ekki missa af. Bókinni Grímsá, drottning laxveiðiánna fylgir Almanak fyrir ísland 1988, sem kynnt er á öðrum stað hér í blaðinu. Nr.: 1655 Fullt verð: 2.010 kr. Okkar verð: 1.565 kr. ■I 8

x

Okkar á milli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Okkar á milli
https://timarit.is/publication/846

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.