Okkar á milli - 01.12.1987, Side 9
Vinsældir Bónustilboðsins fara stöðugt vaxandi
Vandaður dúkur á jólaborðið
Taktu mánaðar-
bókina og
sparaðu þér
900 krónur
Það er alltaf gaman að geta haft rauðan
dúk á jólaborðinu og því bjóðum við nú
sem bónustilboð Veraldar þennan fallega
matardúk. Jóladúkurinn, sem er úr 50%
bómull og 50% polyester, er með sérstakri
áferð þannig að hann hrindir frá sér. Dúkur-
inn er frá breska fyrirtækinu Dorma, sem
þekkt er fyrir vandaðar og góðar vörur, og
er í stærðinni 132 x 228 cm. Hann má þvo í
50 gráðu heitu vatni.Jafnframt bjóðum við
servíettur með dúknum því mörgum finnst
gaman að hafa servíettur í stíl.
Fyrir þá sem taka mánaðarbókina - kemur á gíróseðli. Nr.: Verð: DÚKUR 2067 1.590 kr. 6 SERVÍETTUR 2068 795 kr. 12 SERVÍETTUR 2069 1.590 kr.
Fyrir þá sem ekki taka mánaðarbókina — greiða verður með krítarkorti eða gegn póstkröfu. Nr.: Verð: 2070 2.490 kr. 2071 1.100 kr. 2072 2.200 kr.
Vaxtarækt fyrír konur og karla
Fjör og frískir vöóvar er bók um vaxtarrækt
eftir Andreas Cahling, en Gísli Rafnsson
og Sigurður Gestsson hafa séð um ís-
lensku útgáfuna. Um 120 Ijósmyndir fylgja
æfingunum til skýringar og eru til mikils
hagræðis fyrir þá sem notfæra sér bókina.
Alhliða fræðslurit
Þessi bók er alhliða fræöslurit og hentar
jafnt þeim sem vilja byrja að stunda vaxtar-
rækt og þeim sem lengra eru komnir. Hún
er líka fróðleg fyrir þá, sem hafa í huga að
keppa og ná langt. Einnig kemur hún að
notum öllum þeim mörgum sem vilja
styrkja líkama sinn nú á dögum, og halda
sér í góðu líkamlegu ástandi - og skiptir þá
ekki máli hvort æft er heima eöa í æfingar-
stöð.
Atvinnumaður í vaxtarrækt
Höfundur bókarinnar, Andreas Cahling, er
sænskur að ætt, en býr nú í Bandaríkjun-
um og er þar atvinnumaður í vaxtarrækt.
Andreas hefur komið hingað til Islands
nokkrum sinnum og haldið hér námskeið,
fyrirlestra og sýningar. Margir telja, að
hann hafi átt stóran þátt í að gera vaxtar-
rækt eins vinsæla og hún er nú orðin hér á
landi.
Nr.: 1656
Okkar verð: 559 kr.
9