Okkar á milli - 01.12.1987, Qupperneq 14
Verðlaun til
félagsmanna
Eins og í fyrra, verölaunum viö þá 10 félagsmenn sem verslaö hafa fyrir hæstu
upphæöirnar á árinu. Hér er um að ræða glæsileg bókaverðlaun:
1. VERÐLAUN: 12 MÁNAÐARBÆKUR AÐ EIGIN VALI
2. VERÐLAUN: 11 MÁNAÐARBÆKUR AÐ EIGIN VALI
3. VERÐLAUN: 10 MÁNAÐARBÆKUR AÐ EIGIN VALI
4. VERÐLAUN: 9 MÁNAÐARBÆKUR AÐ EIGIN VALI
5.-10. VERÐLAUN : 8 MÁNAÐARBÆKUR AÐ EIGIN VALI
Skfðalþróttin hér heima og eriendis
Skídakappar fyrr og nú er mikil bók aö
vöxtum, um 430 blaðsíður aö stærö og
prýdd 360 myndum. Hér er rakin ýtarlega
saga skíöaíþróttarinnar, ekki aöeins hér á
landi heldur einnig erlendis. Þetta er bók,
sem allir skíðaunnendur þurfa aö eiga í
bókaskápnum sinum.
Efni bókarinnar skiptist í þrjá meginkafla. (
fyrsta kaflanum er fjallaö um skíðaíþróttina
erlendis, tilgátur um upphaf hennar og
þróun og stuöst við margs konar heimildir.
í öörum kaflanum er greint frá skíðaíþrótt-
inni á íslandi og í hinum þriðja birtast frá-
sagnir þekktra skíðamanna. Þar segja
hvorki meira né minna en 50 íslandsmeist-
arar frá.
Höfundur bókarinnar er Haraldur Sigurðs-
son, en hann hefur unniö mikiö aö íþrótta-
málum á Akureyri síðastliðin fjörtiu ár; var
meöal annars í stjórn Skíöaráös Akureyrar
og Skíöasamþands íslands. Haraldur ritar
meginþættina f erlendri og innlendri skíða-
sögu, en auk hans rita einstakar greinar
þeir Einar B. Pálsson, Þorseinn Einarsson
og Hreggviður Jónsson.
Skiðakappar fyrr og nú hlýtur aö vera kær-
komin bók öllum íþróttaunnendum og
áreiðanlega er víöa oft til hennar gripið,
þegar rifjaöir eru upp gamlir viöburöir úr
sögu skíðaíþróttarinnar.
Nr.: 1659
Okkar verð: 490 kr.
Öðruvísi
jólagjöf
Fiskihnífapör
Þaö eru ekki margir sem eiga fiskihnífapör
og því eru þau skemmtileg og óvenjuleg
jólagjöf. Fiksihnífapörin, sem koma í
smekklegri gjafapakkningu, eru einstak-
lega vönduö (18/10 gæðastál) enda frá
vestur-þýska fyrirtækinu WMF, en það
framleiðir hnífapörin vinsælu sem boöin
hafa verið sem bónustilboð. Fiskihnífapörin
eru fyrir sex manns. - Athugið að panta
sem fyrst því viö fáum ekki aðra sendingu
fyrir jól.
Nr.: 2042
Fullt verð: 2.791 kr.
Okkar verð: 2.550 kr.
Greiða verðurmeð
krítarkorti eða gegn póstkröfu
14