Okkar á milli - 01.01.1989, Page 8

Okkar á milli - 01.01.1989, Page 8
Nr.: 2328 Fulltverð: 2.480 kr. Okkarverð: 1.985 kr. Finnsk verðlauna- skáldsaga Skáldsagan Vetrarstríð er eftir finnska rithöfundinn Antti Tuuri, sem hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1985 fyrir söguna Dagur í Austurbotni, sem einnig hefur verið þýdd á íslensku. Sendiherra Finna hér á landi, Anders Fluldén, ritar eftirmála þessarar áhrifaríku sögu. Skelfilegur hildarleikur Vetrarstríð segir frá því, hvernig óbreyttur hermaður upplifir hinn skelfilega hildarleik, þegar finnska þjóðin þurfti að verjast innrás sovétmanna veturinn 1939 - 40. Höfundurinn, Antti Tuuri, er mikill íslandsvinur, kemur hingað á hverju ári og er nú að vinna að bók um (slands- ferðir sínar. Nr.: 2327 Okkarverð: 850 kr. Hláturs- vekjandi læknislyf Bókin Læknabrandarar inni- heldur á þriðja hundrað skop- sagna um lækna og sjúklinga á íslandi. Það er Ólafur Halldórs- son læknir sem safnað hefur saman efni bókarinnar, og hún er myndskreytt af Kristni G. Jó- hannssyni listmálara. Merkir læknar Ólafur Halldórsson hefur safn- að skrýtlum um lækna og sjúkl- inga alla ævi. Á yngri árum sín- um kynntist hann persónulega mörgum merkum læknum af eldri kynslóðinni, svo s^m Steingrími Matthíassyni, Guð- mundi Hannessyni, Vilmundi Jónssyni og segir af þeim skemmtilegar sögur. Bókin Læknabrandarar er hláturs- vekjandi lyf - og engin þörf á lyfseðli. Góða skemmtun! Minninga- brot og æviþættir Örlög og ævintýri er tveggja binda verk eftir Guðmund L. Friðfinnsson, rithöfund á Egilsá í Skagafirði, sem hefur að geyma safn af æviþáttum, munnmælum og minningabrot- um. Þetta eru vandaðar bækur eftir viðurkenndan höfund, sem Veröld býður nú á ótrúlega lágu verði. Vinsæll höfundur Guðmundur L. Friðfinnsson er þekktastur fyrir skáldskap sinn, til dæmis söguna Leikur blær að laufi, sem hann las í útvarp fyrir nokkru við miklar vinsældir. Á árunum 1984 og 1985 sendi hann hins vegar frá sér verkið Örlög og ævintýri, sem unn- endur þjóðlegs fróðleiks ættu ekki að láta vanta í bókaskáp sinn. Nr.: Fullt verð: Okkar verð: 2329 1.757 kr. 980 kr. 8 OKKAR Á MILLI

x

Okkar á milli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Okkar á milli
https://timarit.is/publication/846

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.