Leo - 01.12.1979, Blaðsíða 2

Leo - 01.12.1979, Blaðsíða 2
LEO - 2 Jólablað Lionsklúbbsins Hængs kemur nú út 6. árið í röð. Útgáfa þessa blaðs er aðal fjáröflunarleið fyrir liknarsjóð klúbbsins og sú eina, þar sem við leitum eftir aðstoð utan klúbbsins. Aðrar fjáröflunarleiðir okkar byggjast á vinnuframlagi klúbbfélaga sjálfra. Og þá er komið að aðalatriðinu: Hvert rennur það fé, sem við öflum á framan- 'greindan hátt? - A þessu sex og hálfa ári, sem klúbburinn hefur starfað, hefur verið veitt úr líknarsjóði til ýmissa málefna, stofnana og einstaklinga. - Má þar tilgreina tceki til sjúkrahússins, hjartabíl fyrir Norðlendinga, bíl fyrir vistheimilið Sólborg, örbylgjutceki fyrir heymardaufa, sem sett voru upp í samkomuhúsinu og kirkjunni, neyðarsafnanir vegna náttúruhamfara, ýmsir styrkir til einstak- linga, árleg afhending endurskinsmerkja til 6 ára bama, 1978 ein milljón króna til Iþróttafélags fatlaðra á Akureyri til styrktar nýbyggingu Sjálfsbjargar og 1978-79 2 milljónir til nýbyggingar Sjálfsbjargar. A sl. vori heimsóttum við Lionsmenn íHrísey áfimm ára afmceli Lionsklúbbs Hríseyjar ogfengum þar frábcerar. móttökur. Ferðin var farin á sjó alla leiðina og var notað tcekifcerið til þess að renna fyrir fisk. I þessariferð var haldinn það sem við teljum lengsta Lionsfundsögunnar,en hann stóð í 12Vvklukkustund.Þáverandi umdcemisstjóri í umdcemi 109 B, Sigurður Ringsted og kona hans voru heiðurs- gestir fundarins. Eins og undanfarin ár hefur Níels Halldórsson, verðlagseftirlitsmaður, samið verðlaunamyndagetraun blaðsins og kunnum við honum okkar bestu þakkir. Þá viljum við einnig þakka starfsmönnum Prentsmiðju Björns Jónssonar fyrir veitta aðstoð við hönnun og prentun blaðsins. Síðast en ekki síst þökkum við auglýsend- um og styrktaraðilum veittan stuðning. Framangreindum og lesendum öllum óskum við gleðilegra jóla og gcefuríks komandi árs og það er von okkar, að sem flestir hafi áncegju, gagn og gaman af blaði bessu. Fræðari, Magnús Ólafsson, sjúkraþjálfari. Frceðari um Fjárhagsácetlun Akureyrar ’79, Sigurður Óli Brynjólfsson. Formaður, Hólmsteinn Hólmsteinsson, fcerir framkvcemdastjóra Sjálfsbjargar tvcer milljónir, sem framlag til nýbyggingar Sjálfsbjargar. Teknir inn nýir félagar. Sigurður Ringsted flytur rceðu á ,,lengsta Lionsfundi sögunnar Núverandi formaður í limbo. r M. Hátíðamessur um jól og nýár í A kureyraprestakalli Aðfangadagur kl. 6 e.h. í Akureyrarkirkju. - P.S. Aðfangadagur kl. 6 e.h. í Glerárskóla. - B.S. Jóladagur kl. 2 e.h. í Akureyrarkirkju. - B.S. Jóladagur kl. 2 e.h. í Lögmannshlíðarkirkju. PS. Jóladagur kl. 5 e.h. í Fjórðungssjúkrahúsinu. PS 2. jóladagur kl. 1.30 e.h. barnamessa í Akur- eyrarkirkju. - P.S. 2. jóladagur kl. 1.30 e.h. barnamessa í Glerár- skóla. - B.S. 2. jóladagur kl. 5 e.h. messa í Minjasafns- kirkju. - B.S. Sunnudagur 30. des. kl. 4 e.h. messa í Elliheimili Akureyrar. - P.S. Gamlársdagur kl. 6 e.h. í Akureyrarkírkju. - B.S. Gamlársdagur kl. 6 e.h. í Glerárskólanum. - P.S. Nýjársdagur kl. 2 e.h. í Akureyrarkirkju. - P.S. Nýjársdagur kl. 2 e.h. í Lögmannshlíðar- kirkju. - B.S. Nýjársdagur kl. 5 e.h. í Fjórðungssjúkrahús- inu. - B.S. Lœknavaktir 24. des. Inga Björnsdóttir, sími 22611. 25. des. Einar Þórhallsson, sími 25788. 26. des. Vilhjálmur Andrésson, sími 22240. 31. des. Magnús Stefánsson, simi 25799. 1. jan. Ólafur Oddsson, sími 24284. Tarmlœknavaktir 24. des. kl. 11-12 Elmar Geirsson, Tryggva- braut 22, sími 22690. 25. des. kl. 3-4 Jón Már Björgvinsson, Þórunn- arstræti 114, sími 24440. 26. des. kl. 3-4 Teitur Jónsson, Glerárgötu 20, sími 24749. 31. des. kl. 11-12 ReginaTorfadóttir, Kaupangi, sími 24622. 1. jan. kl. 3-4 Kurt Sonnenfeld, Hafnarstræti90, sími 24071.

x

Leo

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leo
https://timarit.is/publication/847

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.