Reykvíkingur - 22.12.1928, Side 9

Reykvíkingur - 22.12.1928, Side 9
REYKVIRINGUR 869 Nystrand strandar á Þykkvabæjaifjöru. Norska gufuskipið Nystrand var á leið til íslands; það var 900 smálesta, og fjögra eða fimm ára gamalt. Farmurinn var kol.' Skipstjórinn vissi, að þeir hlutu að vera komnir nálægt landi, en land hafði hann ekki séð. En íslenzkur kyndari, sem var á skipinu, Björgvin Stef- ánsson úr Reykjavík, hafði séð land síðari hluta dags, er hann kom á þilfar. Var þá gott veð- ur, en móða yfir landinu. Ekki hafði Björgvin haft orð á því, að hann hefði land séð, þvi það er ekki siður, að kynd- arar hlaupi til skipstjóra um slíkt; þeir vita vanalega sjálfir betur hvar skipið er statt. ; ' í ;:'í : í í’d ■ : Skipið strandar. Klukkan átta um kvöldið var Björgvin að enda vöku og fór upp á þilfar; var þa haugasjór og kominn byl-hraglandi. Vissi nú enginn skipverja fyr en skipið sigldi á grunn. Suman- veður var og stóð skipið með afturenda beint í vind og’ sjó, og braut þegar báðumegm við það, því stórveltubrim var. Lét skipstjóri þegar vélina hafa aftur á, en árangurslaust; skipið sat fast. Hafði skipstjóri þó haldið að þeir væru 70 sjó- mílur undan landi. Var nú kallað á alla skip- verja upp á bátaþilfar, og var bakborðsbáturinn látinn út- byrðis. En áður en hann vai' kominn niður á sjóinn slitnuðu taugarnar og féll báturinn í sjóinn. Þeir voru þá svona fún- ir kaðlarnir, sem skipverjar áttu líf sitt undir! Lét nú skipstjóri setja út stjórnborðs-bátinn, og sex menn fara í hann. Ætlaði hann þeim að ná í hinn bátinn, en þeir sem fóru í hann voru báðir stýrimennirnir, donkey-maður- inn og þrír hásetar. Það braut. alt í kringum skipið og mun óðs manns æði hafa verið að fara í bát- inn. Þó tókst þeim bátsverj- um að komast frá skipinu, en heldur ekki meira en það, því þá tók brimið þá. Sáu þeir það, sem um borð voru, og heyrðu þá hrópa, en hvað það var, sem þeir hrópuðu vissu þeir ekki, og heldur ekki hvort það voru neyðaróp. Ekki vissu þeir held- ur hvort þeir hefðu faiist eða náð landi. Klukkan níu kom talsverður leki að skipinu, en þó ekki

x

Reykvíkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/854

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.