Reykvíkingur - 22.12.1928, Side 11

Reykvíkingur - 22.12.1928, Side 11
RBYKVtKINGUR TW?t"r 871 Georg hét, 29 ára að aldri. Valdi Björgvin þennan mann, af því, að honum fanst hann kjarkbeztur, en skipstjöri hafði aftur valið Björgvin, af því honum hafði fundist hann úr- ræðabeztur um hvað gera skyldi. Var nú báturínn látinn síga fyrír borð, um mitt skip á bak- borða, og voru þeir Björgvin í bátnum; en þetta var alt gerr. að ráði Björgvins. Gekk vel að láta út bátinn, en í hann var bundinn kaðall, og gáfu þeir á skipinu eftir á kaðlinum jafnótt og þá rak að landi, en þeir Björgvin héldu bátnum uppi með árum. Gekk nú vel um stund, en er þeir voru komnir uppundir land, fylti bátinn, og lentu þeir Björgvin báðir í sjóinn. Svöml- uðu þeir báðir í land, en menn í landi náðu í þá; einnig 1 bát- Björgun hefst. Lét nú Björgvin taka þann bát, er hvolft hafði undir þeim, er fóru i land það kvöld er strandið varð, og færa niður að sjó. Var nii kaðallinn, sem lá fram í skipið bundinn í stafn bátsins, og gerði Björgvin það. En annar kaðall var bundinn við afturenda bátsins og gei’ðu það landmenn. Fór nú Björg-vin í bátinn og gaf skipverjum bendingu að draga, og stóð ekki á því. Komst hann nú slysalaust aftur út að skipi. En skipverj- ar létu sig síga ofan í bátinn, af bógnum, bakborðsmegin. En áður en allir færu í bátinn, var kaðallinn rakinn, niður í hann, en endi hans festur við skipið. Þegar allir voru komnir í bátinn, var mönnum í landi gefið merki að draga að sér kaðalinn, en þá raknaði hnút- urinn, sem hann var bundinn með og versnaði nú að mun að- staða þeirra í bátnum, því þeir voru áralausir. Urðu þeir nú að láta báruna bei’a sig, en tvær fötur, er þeir höfðu, not- uðu þeir til þess að stýi'a bátnum með og láta hann snúa nokkumveginn í báruna. En Björgvin gaf eftir á kaðl- inum, eftir því sem báran bar bátinn undan. Komust þeir nú allir slysa- laust til lands, þrátt fyrir hvernig fór um kaðalinn, þegar hnúturinn raknaði. Voru þeir ekki nema nokkrar mínútur á leiðinni og eftir lítinn tíma voru þeir allir komnir á hest- bak. Eftir tuttugu mínútur

x

Reykvíkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/854

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.