Vera - 01.02.2005, Side 6
Eva í hópi barna á Vesturbakkanum.
Styðjum ungt fólk í Palestínu
- SEGIR EVA EINARSDÓTTIR
» Eva Einarsdóttir vakti heldur betur athygli í desember síðastliönum þegar hún stóð
fyrir útgáfu safndisksins Frjáls Palestína til styrktar verkefnis í þágu unglinga í Palestínu
og var síðan þess heiðurs aðnjótandi að koma fram fyrir hönd Samtaka íslenskra friðar-
hreyfinga í friðargöngunni á Þorláksmessu. í ræöu sinni lagði hún áherslu á samkennd og
samstööu okkar með fólki sem býr við hörmulegar aöstæóur og aó ein lítil gjöf héðan úr
norðri geti skipt sköpum. Eva býr í Gautaborg í Svíþjóð ásamt kærastanum sínum, Eldari
Astþórssyni, þar sem hún er að læra alþjóðlega verkefnastjórnun í mannúðar- og menn-
ingarmálum. Hún hefur lengi látið mannréttindi skipta sig máli enda búin aó vera í Félag-
inu Island - Palestína í mörg ár. VERA ákvaö aó taka Evu tali og spyrja hver aðdragandi
þess hafi verið aó hún ákvað aó gefa út geisladisk til styrktar unglingum á þessum stríðs-
hrjáða stað.
Að setja saman geisladisk í þágu góðs málefnis hefur lengi blundað
í mér. Eg hef unnið við skipulagningu MúsíktiLrauna Tónabæjar og
einnig við tónListarhátiðina IceLand Airwaves og hef mikinn áhuga
á tónlist. I tengsLum við núverandi nám mitt fékk ég síðan tíma tiL
að stýra eigin verkefni samhLiða því að vera i verknámi hjá UNICEF.
Mér gafst því upplagt tækifæri til aó tengja saman áhuga minn á
tónlist, mannúðarmáLum og ungu fólki og útkoman varð geisLadisk-
urinn FrjáLs PaLestína.
Ég hef sjálf starfað sem sjálfboðaLiði í Palestínu og séð þær
hræðilegu aðstæður sem börn og ungt fóLk þar býr við. Ég ákvað þvi
strax i upphafi að markmið verkefnisins væri að styðja við æsku-
Lýðsstarf á herteknu svæðunum og fyrir vaLinu varð verkefnið
Project Hope í flóttamannabúðunum BaLata.
Hver var aðdragandi þess að þú ákvaðst að fara til
Palestínu?
Ég hef unnió mikió meó unglingum og börnum, bæði á íslandi og
í Svíþjóð og Læt máL þeirra mig mikið varða. Þegar ég stundaói nám
í tómstunda- og féLagsmáLafræði i Svíþjóð ákvað ég að eyóa verk-
lega hLuta námsins i PaLestínu, nánar tiltekið á Vesturbakkanum. Ég
vann á vegum samtakana Union of Palestinian MedicaL ReLief
Committees (UPMRC), sem eru Læknasamtök. Þau reka einnig félags-
miðstöðvar þar sem ungt fóLk getur komið á daginn, m.a. til að
ræóa máLin, Læra skyndihjáLp og á töLvur. í miðstöð þeirra i Ram-
alLah hélt ég enskunámskeið, aóstoðaði krakkana við töLvunotkun
og síðan, þaó sem ég heLd aó sé mikiLvægasti hluturinn, að vera til
staðar, aó ræða við krakkana og að vera góður hlustandi.
Ég ferðaðist viða með UPRMC tiL að kynna mér ástandið og reyna
að aðstoða eftir megni. Ég dvaLdi í BaLata fLóttamannabúðum sem
eru þær fjölmennustu á Vesturbakkanum. Ástandið var sérstaklega
sLæmt og hefur þvi miður ekkert lagast. Mörg ungmenni sem þar búa
eru ilLa farin eftir aó hafa aList upp vió sífelldar árásir og áreiti af
hendi hernámsLiðsins. Þegar maður uppLifir svona aðstæður getur
maður ekki gLeymt þvi. Það varð tiL þess aó ég valdi að styrkja
æskuLýðsstarf í Balata búðunum.
Þú hefur þá komið þangað og hitt krakkana sem eiga eftir að
njóta góðs af sölu disksins?
Já, ég gisti nokkrar nætur i BaLata og fékk innsýn i Lifið sem
fólkið þar býr við. Það er ótrúLegt að sjá hvað ibúar búðanna eru
þrátt fyrir aLLt jákvæðir og stoltir. ALLir eru staðráðnir í að Láta kúg-
unina og hernámið ekki buga sig og samheldni fóLks er mikiL. Ef
barnaskólunum er lokaó tekur samfélag búóanna sig til og kennir í
heimahúsum. Ef herinn kemur og rífur niður íbúðarhús eru byggð
ný. Reyndar er kannski ekki rétt að taLa um íbúóarhús því búðirnar
voru reistar til bráðabirgða fyrir meira en fimmtiu árum og nánast
engin uppbygging hefur átt sér stað. Ibúarnir búa við mikiL þrengsLi
og fátækt, í léLegum bráðabirgðahúsum og ástandið kemur að sjáLf-
sögðu sérstakLega iLLa niður á börnunum. Verkefnió sem geisLadiska-
saLan styrkir kaLLast Project Hope og gengur út á aó hjálpa og skapa
von um betri framtíð fyrir börn og unglinga í Balata. Þetta er nýtt
verkefni sem var ekki komið i gang þegar ég var í búðunum, en ég
6/1. tbl. / 2005 / vera