Ljósmæðrablaðið - 01.10.1922, Blaðsíða 7
r
Avarp.
Eitt af þeim málefnum, sem aSalfundur Ljósmæðrafjelags ís-
lands (29. júlí þ. á.) hafði með höndum, var að athuga, hve
dýrt væri að gefa út blað handa ljósmæðrum þessa lands, og
skoraði fundurinn á stjórn fjelagsins, ,,að koma þessu í fram-
kvæmd svo fljótt, sem auÖið væri.“ prátt fyrir alla dýrtíð og
afarháan prentunarkostnað hefir nú stjórn Ljósmæðrafjelagsins
ráðist í að reyna þetta, og kemur hjer nú 1. tölublaðið.
pað kann eð þykja ofdirfska, að ráðast í slíkt fyrir jafn fá-
menna stjett, en stjórn fjelagsins leit svo á, að ekki væri rjett
að leggja árar í bát alveg að óreyndu. Flestar eöa allar stjettir
hjer á Iandi eiga sjer eitthvert blað, sem ræðir málefni þeirra,
þeim til hagsbóta og fræðslu um ýms þau efni, sem að þeirra
starfi lúta, og þykir stjórn Ljósmæðrafjelagsins, sem ekki muni
síður þörf á slíku fyrir ljósmæður þessa lands, þótt fáar sjeu.
Er svo til ætlast, að blaðið flytji greinar um alt það, sem varð-
ar stöðu ljésmæðra og starf þeirra alt, eftir því, sem framast
er unt. Færi vel á að ljósmæður úti um landið sendu því af og
lil ritgerðir, eða þó ekki væri nema smábendingar, um hitt og
þetta, sem þær teldu þess vert að vekja athygli á.
Vitanlega er þetta ekki nema tilraun; það er komið undir
Ijósmæðrum þessa lands, hvort þær hafa þann metnað, að gera
það sem þær geta til þess að halda út blaði fyrir stjett sína, eða
kjósa heldur að hýrast, hver í sínu horni, og láta ekkert á sjer
kræla, og láta sjer standa á sama um stjettarmálefni sín, hvort
sem til frama er eða fræðslu.
pað þykiv nú, sem vonlegt er, ekki sitja vel á stjórn Ljós-
mæðrafjelagsins, að miklast af sjer og sínum gerðum, enda er