Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1922, Qupperneq 14

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1922, Qupperneq 14
10 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ krampinn, sem, eins og nafnið eklampsia bendir á, kemur cem þruma úr heiðskýru lofti, en kemur svo oftast af því, að ekki hefir verið nógu vel að gætt, þvagið ekki rannsakað. A seinni árum hefir oft tekist að koma í veg fyrir fæðingarkrampa með J?ví að fylgjast nógu vel með líðan vanfærra kvenna og sjerstak- lega með þvagrannsókn og haga svo meðferðinni eftir J?ví. Aðgerðir ljósmóðurinnar við nýrnabólgu verða venjulega ofur einfaldar. pegar læknir er við hendina, er altaf rjettast að snúa sjer til hans, þegar eggjahvítan finst í þvagi, en sje eggjahvítan lítil og langt til læknis, má reyna að láta konuna liggja í rúm- inu, borða sem ljettasta fæðu, helst mjólk og mjólkurmat og halda hægðum í góðu lagi. Ef eggjahvítan hverfur bráðlega við J>etta, er hættan sennilega lítil, en vilji hún ekki hverfa og sjer- staklega ef hún eykst, J>á er sjálfsagt að láta lækni skera úr, hvað gera skuli. Annar algengasti nýrnakvillinn er kvef í þvaggöngunum (pyelitis), og er venjulegast að eins bólga í slímhúðinni og mest í J>vaggangsvíddinni uppi við nýrun. Eins og við kvef annarstað- ar, myndast slím og gröftur á slímhúðinni og skolast burtu með þvaginu og finst í J?ví við skoðun, en eggjahvíta er mjög sjaldan greftinum samfara, nema spor eða varla meira en svarar til J>eirrar eggjahvítu, sem er í graftrarfrumunum sjálfum. Kvefið mun ávalt orsakast af bakteríum, sem annað hvort koma blóð- leiðina til nýrans eða frá blöðrunni upp móti Jjvagstraumnum. Síðarnefnda leiðin er erfið bakteríum og nær J>ví ófær, nema eitthvað sje J>ví til hindrunar, að þvagið geti runnið eðlilega frá nýrunum niður í blöðruna. pessi hindrun verður einmitt oft hjá vanfærum konum, sjerstaklega seinni hluta meðgöngutímans, J>eg- ar legið er orðið stórt og liggur á þvagpípunum, og sjerstaklega J>egar höfuðið er farið að ganga niður í grindina. petta getur ekki eingöngu orðið orsök til kvefsins heldur líka, og sjerstak- lega, orðið til J>ess, að kvef, sem einu sinni er komið, vill ekki batna. pvagið safnast fyrir ofan við stýfluna og veitir J>annig bakteríunum ágæt skilyrði til J>ess að tímgast og magnast. pað er líkt með kvefið eins og nýrnabólguna, að konur ganga oft með J>að, án J>ess að verða þess varar, J>að veldui

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.