Ljósmæðrablaðið - 01.10.1922, Blaðsíða 8
4
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
fjelagið enn svo kornungt, að varla verður með sanngirni heimt-
að, að það hafi þegar komið miklu til vegar. En minna má
]?ó á, að þa? er fjelaginu að þakka, ]?ó ungt sje, að bætt voru
launakjör Ijósmæðra.
pá hefir fjelagið líka sent áskorun til Alþingis um styrk til út-
gáfu nýrrar kenslubókar í yfirsetufræði, og hefir þetta borið
þann árangur, að nú er verið að prenta þýðingu á Brandts
ljósmóðurfræði, sem hver Ijósmóðir ætti að eignast (verður bók-
in líklega fullprentuð upp úr áramótunum). Enn hefir fjelagið
með höndum málaleitun um breytingu á ljósmóðurskólanum,
þótt enn sje ósjeð, hvernig því máli reiðir af. —
Loks hefr fjelagið ráðist í þetta fyrirtæki, að gefa út blað,
og veit engin okkar hver örlög þess verða, — hvort króginn verð-
ur látinn lognast út af úr hor og hungri, eða hvort ljósmæður
vilja vera samhuga um að gera sitt til að hann geti lifað. pað
er alveg á þeirra valdi, og „þá veit gjörr er reynir“.
petta 1. tölublað er nú sent út til allra landsins ljósmæðra; er
hugsunin sú, að láta koma 4 slík tölublöð yfir árið, og kosti ár-
gangurinn 4 kr. Er nú skorað á ykkur allar, kæru starfssystur,
að senda um hœl skriflega yfirlýsingu um það, til stjórnar Ljós-
mæðrafjelagsins, hvort þið viljið gerast áskrifendur að þessu
blaði. Andvirðið væri kærast að fá sent sem fyrst til gjaldkera
fjelagsins. Væntanlegir kaupendur blaðsins eru vinsamlega beðn-
ir að senda pantanir sínar til ritstjórnarinnar og tilgreina heimilis-
fang sitt, hrepp og sýslu.
í ritstjórn fyrst um sinn er stjórn Ljósmæðrafjelags íslands.
Brjóstbörn og pelabörn.
Rannsóknir lækna hafa leitt í ljós, að stórfeldur munur er
á heilbrigði ungbarna eftir því, hvort þau eru Iögð á brjóst eða
alast upp við pela; brióstbörnunum farnast miklu betur en pela-
börnum. Á Norðurlöndum, þar sem meðferð ungbarna er með
svipuðum hætti og hjer á landi, hafa verið athuguð afdrif ung-