Ljósmæðrablaðið - 01.10.1922, Blaðsíða 10
6
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
lap, sem hefir of lítiS næringargildi eSa hiS gagnstæSa, aS
mjólkurblandiS er of sterkt og veldur því meltingarkvillum.
2. pegar mjólkin kemur ofan í maga ungbarnsins, ystir hún,
)?. e. a. s., ostefni mjólkurinnar hleypur í kekki, og er þetta eSli
legt fyrirbrigSi. En sá mikli munur er á brjóstamjólk og kúa-
mjólk, aS hin síSarnefnda hleypur í grófa, draflakenda og tor-
meltanlega kekki, en í brjóstamjólkinni er ystingurinn miklu fín-
gerSari og auSmeltari.
3. Brjóstamjólkin tæmist á styttri tíma úr maga ungbarnsins
en pelamjólkin. Magi brjóstbarnsins fær því hvíld á milli mála,
sem pelabarniS fer á mis viS.
4. Brjóstbörnum er síSur hætt viS meltingartruflun vegna of
mikillar mjólkurdrykkju en pelabörnum. Margir fullorSnir kunna
sjer ekki magamál, hvaS þá heldur óvita börnin. Slíkt óhóf í
brjóstamjólk kemur tæplega aS sök, vegna þess, hve auSmeÍt
hún er og viS barnanna hæfi, en jeg tel engan vafa á, aS ýmsir
meltingarkvillar muni orsakast af þeim ósköpum, sem ýms pela-
börn fá aS drekka um sólarhringinn. paS er ekki einhlítt, aS
leggja fyrir um, hvernig blanda skuli mjólkina; líka verSur aS
segja mæSrunum, hve mikiS þær skuli lofa börnunum aS drekka
um sólarhringinn.
5. Mjólkin, sem ungbarniS sýgur úr brjósti móSur sinnar, er
hrein og sóttkveikjulaus og meS hæfilegu hitastigi. Kúamjólkin
er aftur á móti ætíS meira eSa minna óhrein; að vísu má sótt-
hreinsa mjólkina meS því að flóa hana, en hversu oft fer ekki
slíkt í handaskolum? Og þótt mjólkin sje hrein, eru stundum
chreinindi í pela eða túttu. Auk þessa er taliS, að ýms efni mjólk-
urinnar spillist við suSuna.
6. Brjóstamjólkin er ekki einasta hrein og sóttkveikjulaus.
í henni eru og sjerstök efni, svonefnd móteitur, sem komast inn
í blóðrás ungbarnsins og geta verodað það gagnvart barnaveiki
cg öðrum sjúkdómum. Rannsóknir hafa leitt í ljós, að í blárii
brjóstbarna er talsvert af efnasamböndum, er vinna á sóttkveikj-
um og verja barnið gegn stjúkdómum; miklu síður á þetta sier
stað í blóði pelabarnanna.
pegar öll þessi atriSi eru athuguð, er ekki að furða, þótt