Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1922, Blaðsíða 15

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1922, Blaðsíða 15
LJ ÓSMÆÐRABLAÐIÐ w ef til vill að eins þyngslum og þreytuverkjum í bakinu, sem kon- ur halda að eðlilegt sje um meðgöngutímann, og gefa þess vegna lítinn gaum. pá er það að eins þvagrannsóknin, sem getur r.ýnt að um kvef sje að ræða, þegar gröftur og bakteríur finnast í þvaginu. Oftast helst veikin langa lengi, eða út meðgöngutím- ann á þessu væga stigi, en stundum versnar veikin snögglega og getur þá orðið mjög óþægileg og hættuleg. Konan fær þá alt í einu háan hita og mikla verki í lendarnar og fram eftir, niður að lífbeininu, og oft skjálfta og uppköst. Verkirnir koma oft í köstum og geta líkst hríðum, svo konan heldur að fæðing sje að byrja, en um Ieið koma líka töluverð eymsli í lendarnar og jafn- vel fram á kviðinn, og getur þá, ef veikin er hægra megin, verið erfitt að þekkja hana frá botnlangabólgu, og hefir margur saklaus bctnlangi verið tekinn af þeirri ástæðu. Oftast er þó auðvelt að þelckja veikina, ef vel er að gáð og þvagið rannsakað. Samfara kvefinu verða þvaglátin mjög tíð og sár, en lítið kemur af þvagi í einu og það sem kemur, er gruggugt. Svona köst, með háum hita, skjálfta og verkjum, geta staðið lengi og orðið hættuleg lífi og heilsu konunnar, en oftast lagast ■þetta von bráðar og stundum snögglega, líkt og tekið hafi verið úr stíflu og greftinum hleypt út. En algengt er það, að köstin koma hvert eftir annað, þótt konunni líði vel á milli, og óhætt má fullyrða, að lcona, sem fengið hefir nýrnakvef um meðgöngu- tímann, losni ekki við það til fulls, fyr en eftir fæðinguna, en þá er líka venjan sú, að kvefið batnar tiltölulega fljótt, þótt hiía- cg verkjaköst geti líka komið í sængurlegunni. pað sjest aftur hjer, eins og við nýrnabólguna, að mikið er undir því komið, að rannsaka þvagið við og við um meðgöngu- tímann, og sjerstaklega að láta það ekki undir höfuð leggjast, ef kcnan fer að kvarta um bakverk eða tíð þvaglát með verkjum cg sviða. En hjer ber þess sjerstaklega að gæta, ef ljósmóðirin ætlar að skoða þvagið eða senda lækni til rannsóknar, að þvag’tð sje hreint og ómengað, eins og það kemur frá konunni. Ef slím eða önnur útferð frá leggöngunum blandast þvaginu, þá getur það vilt mjög og gert rannsóknina óáreiðanlega. pað verð- ur því annaðhvort að taka þvagið með þvaglegg eða hindra

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.