Ljósmæðrablaðið - 01.03.1937, Síða 8
18
LJ ÓSMÆÐRABLAÐIÐ
sem fylgja þessari stefnu, biða þvi eftir að legið hreinsist
af sjálfsdáðum, en gefa kinin og pituitrin lil að flýta fyrir.
Báðar þcssar stefnur liafa sina kosti og ókosti. Róttæk-
ari stefnan hefir þann kost að stytta leguna, sem annars
getur orðið lalsvert löng, en virðisl aftur á móti kosta
fleiri konur lífið en hin aðferðin, sem hefir þann ókost,
að sjúklingur verður oft að liggja æði lengi.
Flestir læknar munu sem vandlegast vilja komast lijá
því að þurfa að ásaka sig um að hafa kannske með aðgerð
sinni valdið tjóni og því virðist siðari stefnan — sú, að
láta náttúruna leysa spursmálið með þeirri hjálp, sem
hægt er að veita lienni í lyfjum — hafa rneira fylgi. En
vegna hennar ókosta, hefir verið reynt að finna nýja
lausn á málinu - einskonar' milliveg, sem er i þvi fólg-
inn að biða nokkra daga, þar lil hiti hefir lækkað. Sé
konan svo liitalaus i 3—4 daga, er legið hreinsað, i þeirri
trú, — sem athuganir virðasl staðfesta, — að sóttkveikj-
urnar hafi þá misst nokkuð af kralti sínum. Sumir hafa
aftur farið þá leiðina, að gera strax sótlkveikjurannsókn-
ir, komast að þvi um hvaða tegundir sýkla er að ræða og
skafa þá legið, ef um meinlausari tegundir þeirra er að
gera, en híða annars. Slíkar ræktunaraðferðir eru sein-
legar og víða óframkvæmanlegar, og virðast ekki hafa
fengið mikið fylgi.
Sú aðferðin, að fara milliveginn, sýnist mjög skyn-
samleg, meðan deilan um hinar aðferðirnar er ckki til
lykla leidd.