Ljósmæðrablaðið - 01.03.1937, Blaðsíða 9
LJOSMÆÐRABLAÐIÐ
19
Sjúkrasaga.
í júlí s.l. var iiiín vitjað til konu, seni var vanfær í
niunda sinni, hafði fætt 6 lifandi börn og leyst tvisvar
höfn. Hún liafði allaf verið hraust um meðgöngutíin-
ann, fæðingar og sængurlegur eðlilegar. Fósturlátin,
sem urðu milli 2. og og 5. og (i. harns, gengu sjálf-
krafa, án allra eftirkasta.
Tíðir, sem altaf höfðu verið reglulegar frá 14 ára
aldri, voru síðast nálægt 20. désember. Fyrstu hreyf-
ingar fann liún um miðjan maí; virtust þær eðlilegar
fram að 21. júlí, en þann dag fundust henni þær óeðli-
lega miklar og upp frá þvi fann hún ekkert lífsmark
með fóstrinu, og þess vegna var min vitjað.
Þegar eg skoðaði konuna gat eg ekki fundið lireyf-
ingar eða fósturliljóð, en annað gat eg ekki fundið óeðli-
legt. Þess vegna ráðlagði eg lienni að hiða i hálfan
mánuð, en hafði slöðugt eftirlit með henni. Eftir þann
tima fær konan verki, sem líktust hríðum og stóðu yfir
í einn sólarhring. Samfara því fær liún 38 stiga hita,
sem hélst i 2 sólarhringa. Á þessum hálfum mánuði
óx þyktin ekki neitt, en kviður og brjóst linuðust, kon-
an kvartaði um klíju, þyngsli i holinu, kuldatilfinn-
ingu og vanlíðan. Ekkert fanst í þvagi og enginn hjúg-
ur í fótum. Ráðlegg eg konunni nú að leita til læknis.
Við læknisskoðun 12. ágúst fundust ekki nein ákveðin
sjúkdómseinkenni hjá konunni, blóðþrýstingur var
eðlilegur, blóðmagn í góðu lagi, ekkert óeðlilegt í þvagi
og enginn bjúgur í fótum eða annarsstaðar. Stærð legs-
ins svarar til þess, að konan væri búin að ganga með
í sjö mánuði. Fósturliljóð og önnur lífsmerki finnast
ekki. Engin eymsli á legi eða annað athugavert við líf-
færi kviðarliolsins. Áleil læknirinn, að um fósturdauða
væri að ræða, og sendi konuna til röntgenmyndunar.