Ljósmæðrablaðið - 01.07.1945, Qupperneq 3
Ljósmæðrablaðið IV. 1945.
Minningarorð:
Þorleif K. Sigurðardóttir, Ijósmóðir,
Hún var fædd að Svelgsá 13. janúar 1875. Foreldrar
hennar voru Sigurður Guðmundsson oddviti og bóndi þar
og kona hans Ingibjörg Guðbrandsdóttir. Dvaldist hún hjá
foreldrum sínum til æfiloka
þeirra, en faðir hennar dó 5.
janúar 1903 og móðir henn-
ar 18. des. 1905.
Tók hún þá við bústjórn
hjá Guðbrandi bróður sín-
um er þá fór að búa á föð-
urleifð þeirra. Var hún þar
bústýra til vorsins 1913, að
hún giftist eftirlifandi manni
sínum Þorsteini Jónassyni
óðalsbónda að Helgafelli.
Eftir 9 ára búskap að
Helgafelli, keyptu þau hjón
og fluttu að Kongsbakka og
bjuggu þar síðan. Þau eign-
uðust 1 son sem nú er
kvæntur og búsettur á
Kongsbakka. Einnig ól hún upp 6 fósturbörn, 2 meðan
hún bjó með bróður sínum, en 4 annaðist hún ásamt eigin-
manni sínum.
Þórleif heitin var mikil gáfukona og kvenskörungur. í