Ljósmæðrablaðið - 01.07.1945, Blaðsíða 11
L JÓSMÆÐR ABL AÐIÐ
45
Þuríður Bárðardóttir, hafði sent fundinum til umræðu, og
voru það þessi:
1. „Að fyrsta aðstoðarljósmóðir við fæðingadeild Land-
spítalans verði ekki lengur en 2 ár, og ekki lengur en 1 ár,
hafi hún áður verið önnur ljósmóðir á deildinni.“
Var þessari uppástungu mjög vel tekið.
2. „Skyldunámskeiði fyrir eldri ljósmæður verði komið
á strax og hin nýja fæðingadeild tekur til starfa.“
Var fundurinn þessu mjög meðmæltur og taldi það
ágætt. En þó töldu nokkrar fundarkonur, að erfitt mundi
að fá ljósmæður að gegna störfum þeirra, sem fara yrðu,
og eins, hvort þær mundu efnalega hafa ástæður til þess.
Að sjálfsögðu munu þær þó geta fengið frítt uppihald sitt
við Landspítalann.
3. „Að vakin verði athygli á því, að Ljósmæðrafélagið
hefir á undanförnum árum safnað nokkur hundruð krón-
um í sjóð til styrktar ljósmæðrum, sem fara vilja utan til
framhaldsnáms. Styrkurinn sé sérstaklega bundinn við
ungar, efnilegar Ijósmæður, sem nýlega hafa lokið námi,
og eru illa stæðar f járhagslega. Hver, sem sækir um styrk,
verður að leggja fram staðfesta efnahagsskýrslu og önnur
nauðsynleg vottorð."
Um þetta urðu f jörugar umræður, og vildu allir gott til
leggja, að þessi utanfararsjóður mætti eflast sem mest,
og voru margar uppástungur á lofti um það, hvað gera
skyldi.
Þá var tekinn fyrir 4. liður, sem var á þá leið: „að Ljós-
mæðrafélag Islands hlutist til um, að Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur hafi eftir sem áður eftirlit með barnshaf-
andi konum, sem ætla að fæða í heimahúsum. Þótt eftirlit
með konum þeim, sem ætla að fæða í fæðingardeild Land-
spítalans, flytjist að sjálfsögðu í spítalann.“
Var fundurinn þessu meðmæltur, þó að sjálfsagt þyki, að
hver ljósmóðir skoði sjálf þær konur, sem snúa sér til
hennar fyrirfram um fæðingarhjálp í heimahíisum.