Ljósmæðrablaðið - 01.07.1945, Qupperneq 6
40
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Til mæðra- og ungbarnaverndar má telja þá skipan,
sem komið hefur verið á framkvæmd fóstureyðingarað-
gerða í landinu. Mæðrum til tryggingar miðar það, að
slíkar aðgerðir eru heimilaðar, ef lífi þeirra eða heilsu
telst hætta búin af þunguninni, en ungbörnum til verndar,
að reynt er að girða fyrir misbeiting aðgerðanna. Þó að
vera kunni nokkrar misfellur á framkvæmd fóstureyð-
ingarlöggjafarinnar, mun mega fullyrða, að í þessum efn-
um stöndum vér engri þjóð að baki.
Yfirleitt er það heiður vor íslendinga, að um barnsfarir
og meðferð ungbarna erum vér ekki eftirbátar menning-
arþjóða, og stöndum vér einkum framarlega, að því er
tekur til lítils ungbarnadauða, sem er minni með oss en
flestum öðrum þjóðum.
Með nokkrum ugg er til þess að líta, að hart komi niður
á barnsfæðandi konum sú bylting, sem orðið hefur í þjóð-
lífinu, að konur, aðrar en húsmæður einar, hverfa nú
meira og meira frá heimilisstörfum, og nær umkomuleysi
húsmæðra af þeim sökum bæði til sveita og kaupstaða.
I kaupstöðum og öðru þéttbýli er einkum horft til þeirra
bjargráða, að konur ali börn sín utan heímilis á sjúkra-
húsum eða sérstökum fæðingarstofnunum, og er þegar
fullráðið, að reist verði á næstunni á vegum ríkis og
Reykjavíkurkaupstaðar fæðingarstofnun, er fyrst um
sinn geri jafnvel betur en rúma á hverjum tíma allar
sængurkonur í Reykjavík. En engan veginn leysir sú
lofsverða rausn allan vanda, og sízt þeirra sængurkvenna,
sem fyrir hafa á höndum sér ung börn, er ekki verða eftir
skilin forsjárlaus, auk þeirrar heilsuraunar að koma heim
af fæðingarstofnun og eiga þá að taka við umsýslu heim-
ilis, ef til vill öllu úr skorðum gengnu vegna undangeng-
innar f jarvistar húsmóðurinnar. Vel búnar fæðingarstofn-
anir eru vissulega dýrmæt trygging barnsfæðandi konum
og ungbörnum og þá einkum ómetanlegar, þegar verulega
ber út af um fæðingar. En „fátt er svo gott, að galli né