Ljósmæðrablaðið - 01.07.1945, Page 7
LJÓSMÆÐR ABLAÐIÐ
41
fylgi“, og mun sá annmarki lengst fylgja almennum fæð-
ingarstofnunum, að þar verði illa komið við þeirri einangr-
un og öðrum sóttvörnum, að ekki verði jafnan nokkur
sótthættuauki af sambýlinu, er leitt geti jafnvel til leiðra
slysa á konum og börnum. Á farsóttatímum margfaldast
sú hætta, auk augljósra allsherjar vandræða, sem af
því hljóta að leiða, er fæðingarstofnun, sem fjölmenn
byggð á allt undir um fæðingaraðhlynning, verður fyrir-
varalaust að loka af sóttvarnarástæðum. Þessir annmark-
ar eru þó ekki umtals verðir, þegar á móti kemur öryggi,
sem gerir betur en vega á móti þeim, svo sem telja verð-
ur, að eigi sér stað, þegar til er að dreifa afbrigðilegum
fæðingum, heimilislausum konum eða konum frá heimil-
um, sem einhverra hluta vegna hafa lítil eða engin tök á
að sinna sængurkonu. Því er að þessu vikið, að markið
þykir engan veginn sett nógu hátt með því einu að gera
greiðan aðgang að góðri fæðingarstofnun. Er hærra
stefnt og mæðrum og ungbörnum bífið enn meira öryggi
með því að gera sem allra flest heimili með einhverjum
ráðum þess umkomin að veita heilbrigðum konum á
barnssæng þá aðhlynning, að þær geti áhættulaust alið
börn sín heima, tryggðar þeirri baktryggingu, að hverri
konu megi fyrirvaralaust koma á sjúkrahús eða fæðingar-
stofnun, jafnskjótt sem eitthvað ber út af heilsu hennar
eða gang fæðingarinnar.
Varnir gegn kynspiílingu.
Til þeirra má telja, þó að lítið fari fyrir, framkvæmd
laga um afkynjanir og vananir, og er einkum að því
stefnt, að fávitar og annað vanmetafólk í andlegum efn-
um, svo og þeir, sem haldnir eru arfgengum sjúkdómum,
auki ekki aðgæzlulaust kyn sitt. Nokkurs misskilnings
hefir gætt um það, hvert sé hlutverk nefndar þeirrar,
sem mál þessi hefir með höndum samkvæmt lögum.