Ljósmæðrablaðið - 01.07.1945, Qupperneq 9
LJÖSMÆÐRABLAÐIÐ
43
þar fyrst, að lagt var fyrir alþingi frumvarp til laga um
lenging Ljósmæðraskólans úr einu ári upp í 2ja ára nám
o. s. frv. Sagði fundarstjóri svo frá, að þingið hefði ekki
séð sér fært að taka frumvarpið til meðferðar í þetta
sinn. — Um þetta urðu talsverðar umræður, og þarf
sjálfsagt enginn að örvænta um, að þetta nái ekki fram að
ganga, þar sem það verður beinlínis nauðsynleg breyting,
þegar hin nýja fæðingardeild tekur til starfa. Að svo búnu
fól fundurinn stjórninni að halda þessu máli vakandi og
fá því framgengt, ef unnt verður.
Næst skýrði fundarstjóri frá þvi, samkvæmt áður upp-
lesinni fundargjörð síðasta aðalfundar, viðvíkjandi heilsu-
verndarstöð Vestmannaeyja, að landlæknir hefði eftir
beiðni stjórnar Ljósmæðrafélagsins gjört fyrirspurn til
Vestmannaeyja, hvort útiloka ætti ljósmæður þar frá
eftirliti með vanfærum konum við væntanlega heilsuvernd-
arstöð í Vestmannaeyjum. Svarið var, að það hefði aldrei
komið til mála.
Þá var launamálið næst tekið fyrir. Fundarstjóri skýrði
svo frá, að það hefði verið rætt innan stjórnar Ljósmæðra-
félagsins, hvort nokkuð mundi ávinnast ljósmæðrum í hag
með tilliti til launaltjara við það að ganga í „Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja“. Og ennfremur sagði fundar-
stjóri frá viðtali sínu við stjórn Bandalagsins og las upp
lög þess. Urðu miklar umræður um þetta mál. Allflestar
fundarkonur tóku til máls, og voru þær allar mjög á einu
máli um nauðsyn launahækkunar og sögðu mörg dæmi því
til stuðnings, hve laun ljósmæðra væru tilfinnanlega lág,
samanborið við það, sem gjalda þyrfti fyrir, hvað litla
heimilishjálp sem væri. Og töldu sumar sér jafnvel ómögu-
legt að halda áfram ljósmóðurstarfi með þeim mun, sem
nú væri á launum ljósmæðra og annarra kvenna, — við
venjuleg heimilisstörf. Eftir miklar umræður kom fram
svolátandi tillaga.: „Fundurinn skorar á stjórnina að gjöra
allt, sem unnt er, til þess að bæta launakjör ljósmæðra sem