Ljósmæðrablaðið - 01.03.1947, Síða 6
16
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
næðu til stærri lesendahóps en lítið stéttarblað hefir á að
skipa.
Að innganginum loknum heldur landlæknir áfram á
þessa leið:
„Svo mikið finnst R. Á. til um yfirsetustörf Jóns Finn-
bogasonar á Ásunnarstöðum í Breiðdal eystra (d. 1906),
að honum er spurn, hvort ekki muni „vera einsdæmi, að
ólærður maður hafi lagt stund á fæðingarhjálp og líknað
í svo mörg skipti.“.
Finnst landl. spurningin furðuleg eftir þeim skilningi,
er hann leggur í hana, þ. e. að R. Á. hafi ekki áður verið
kunnugt um, að „ólærðir karlar“ tækju að sér yfirsetu-
störf. En til þess að ráða bót á þessari fáfræði nefnir hann:
,, . . . af handahófi þessa alkunnu yfirsetumenn, einn úr
hverjum fjórðungi, öðrum en Austf.fjórðungi, og alla sam-
tímamenn Jóns á Ásunnarstöðum: Sveinn Sveinsson á Sleitu-
stöðum í Skagafirði (d. um 1880), er mun hafa fengið
opinbera viðurkenningu fyrir þessi störf sín, Jón Björns-
son að Svarfhóli í Álftafirði vestra (d. 1894), er um tíma
mun beinlínis hafa verið ráðinn yfirsetumaður í aðra
sýslu, og Eyjólf Runólfsson í Saurbæ á Kjalarnesi (d.
1930). Hafði hinn síðast nefndi tekið á móti ekki færri en
481 eða 482 börnum (aðrar heimildir: 600), er hann and-
aðist. Lifði hann og starfaði langt fram á ævi R. Á. og að
heita má í næstu sveit við hann.
Það er enn vísbending um, hve því fer fjarri, að yfir-
setustörf Jóns á Ásunnarstöðum séu réttilega talin til eins-
dæma, að hann átti ekki langt undan alnafna, sér nokkru
eldra, er var ekki miður kunnur af fæðingahjálp en hann,
þar sem var Jón Finnbogason í Presthvammi hjá*Grenj-
aðarstað (d. 1846).
Loks má nefna tvo landskunna menn á 19. öld ólæknis-
lærða, er báðir lögðu stund á yfirsetustörf, þá Níels Jóns-
son skálda og Pétur Jónsson, bónda í Reykjahlíð.
Öll þessi dæmi eru frá þeim tímum, er lærðar ljósmæður