Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1921, Síða 5

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1921, Síða 5
T I M A R IT V. F. I. 1 9 2 1. 15 jafnlengi á leiðinni frá L inn í kíkirinn. Sá sem fer til S j er lítið eitt lengur á leiðinni, en sá sem fer til S2. En þá ætti að sjást breyting á v í xl r ák u num, e f borðinu væri snúið þann- ig að skift væri um stefnur á GrSi og 6Sr Hjer er ekki ónákvæmni til að dreifa. Það hefur verið reiknað út, að breyting hefði át.t að sjást á víxlrákunum, þó að hraði jarðarinnar væri ekki nema ca l°/0 af því sem hann er. Tilraunin hefir JS verið endurtekin — og það víst oftar en einu sinni — og niðurstaðan verið alveg sú sama. A þessu undarlega fyrírbrigði fann nú próf. Lorentz í Leyden einkennilega skýringu. Hún er á þá leið, að allir hlutir dragist saman við hreyfingu — þó aðeins í þá stefnu sem þeir hreyfast í — og sje sá samdráttur svo mikill, að ef lengd hlutarins er X þegar hann er kyr í ljósvakanum, og hraði hans v, þá verði lengd hans X \J i — va/c2 ef c er ljós- hraðinn. Borðið í Michelsons tilraun dregst þá saman í stefnuna GSj svo að tímalengdin, sem ljósgeislinn þarf til þess að fara milli G og St fram og aftur er 2 c 1 . .. 2 c X y - y«/c.» _ _ ___2 J.___ V c2 — v2 ekki Cz — v2 ’ cz — vz eða sama tímalengd, sem ljósið þarf til þess að fara milli G og S2 fram og aftur. Þessi samdráttur á ekki að koma af fyrirstöðu í ljósvakanum, heldur á hann að vera sjálfsögð fylgja lireyfingarinnar („Rein als Geschenk von oben, als Begleitumstand des Umstán- des der Bewegung“ segir Minkowski). H r e y f i n g a r f r æ ð i Minkowskis. Min- kowski hrærir saman rúminu og tímanum í einn graut, sem kalla mætti „tímarúnU. „Von Stund ’an sollen Raum fur sich und Zeit fur sich völlig zu Schatten herabsinken, und nur noeh eine Art Union der beiden soll Selbstándigkeit bewahrenu segir hann. Hann rjettlætir þetta með því, að það sje ómögulegt að skilja rúmkoordinatana frá tímaparameternum, þ. e. að ekki verði bent á neinn punkt (x, y, z) nema á vissum tíma (t), svo að allar fjórar „ákvæðisstærð- irnar“ x, y, z og t heyri óaðskiljanlegá saman. Það væri nú í sjálfu sjer ekkert því til fyrir- stöðu að hafa tímann fyrir fjórða koordinat í Newtons hreyfingarfræði, og gera hana þannig að rúmfræði i fervíðu rúmi. Það er vel hægt að skilgreina fervítt rúm á analytiska vísu, en í þessu ágripi er hægt að komast hjá því á þann hátt, að liugsa sjer allar hreyfingar í einum sljettum fieti, leggja síðan í flöt- inn tvo koordinatása hornrjetta hvorn við annan, og reisa síðan t-ásinn lóðrjett á flötinn í skurðpunkti heldur hinna. Nú verður að gæta þess vel, að punktarnir P, Pj og P2 (3. mynd) eru sami punkturinn „rúm- legau skoðað, ef P er kyr í xy-fletinum. Tíminn held- nr áfram að liða, svo að t-koordinatinn breytist; en sem „tímarúmspunktar11 eru þeir ekki þeir sömu. Eins er um punktana Q, og Q,2. Hugsum oss hlut- punkt1) Q á jafnri hreyfingu í fletinum, samsíða x-ásn- um. Q, Q’ og Q” eru þá sami punkturinn, á ýmsum tímum. En í tímarúminu er Q, Qt og Q2 ekki sami punkturinn, þvi að þar er t koordi- nat, sama hátt og x og y. í tímarúminu er því ekki um eiginlega hreyfingu að ræða. Hreyfingin í hinu þrívíða rúmi verður kyrstaða í hinu ferviða tíinarúmi, hreyfingarfræðin að rúmfræði. Sje hreyf- ingin jöfn á Q, er heimkynni tímapunktsins Q línan Q Q, Q2, og er hraði punktsins Q gagnvart origo, tangens af því horni sem sú lína myndar við t-ásinn. Sje hreyfing Q gagnvart koordinatkerfinu ójöfn, verð- ur heimkynni tímapunktsins Q boglína (t. d. parabóla, ef hreyfing punktsins Q er jafnt vaxandi, skrúfulína, ef Q hreyfist í hring með jöfnum hraða o. s. frv.). Minkowski kallar nú samhugtak rúms og tíma (þ. e. öll gildi sem ferningin x, y, z, t getur haft) „ver- öldu (Die Welt), og heimkynni tímapunktsins kallar hann „Weltlinie“, en jeg ætla að kalla það „tíma- línu“ punktsins. Nú éiga lögmálin i hreyfingarfræði Newtons að vera óbreytt, þó að í stað koordinatanna x, y og z sjeu settir nýir: x’ y’ og z’, ef x2-)-y2-)-z2 =x’2-)-y’2-)-z’2, þ. e. þó að koordinatkerfinu sje snúið um origo. Ennfremur eiga þau að vera óbreytt, þó að í stað ákvæðisstærðanna x y og z sjeu settar aðrar: x’, y’ og z’, ef x’=x—at, y’=y—og z’= z—j't; n, /?, og j' geta þýtt hvaða tölur sem vera skal. Þetta leiðir af inertiulögmálinu. Koordinatkerf- ið x’, y’, z’, er þá á jafnri hreyfingu gagnvart koor- dinatkerfinu x y z. í rúmfræðilegri hreyfingarfræði mundi þá mega orða. það lögmál svo, að t - á s n u m má halla eftir vild. Það má þá í rauninni telja hvaða punkt sem vera skal kyrran gagnvart koor- dinatkerfinu; til þess þarf aðeins að snúa t-ásnum *) Minkowski hugsar sjer aö i hverjum punkti sje íi hverj- um tima „eitthvað“, sem hann kallar „Substanz", „um nicht Materie ode Elektrizitítt zu sagenu segir hann. Jeg kalla Substanz „hlut“ og punktinn „hlutpunkt".

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.