Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1957, Blaðsíða 4

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1957, Blaðsíða 4
14 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ barnið sprikla undir hendi mér, eins óhindrað og það lægi bert á borði. Ég gerði yfirlækninum óðar boð um, hvers ég hefði orðið vísari. Hann lét samstundis leggja konuna á skurðarborð, og ekki var laust við, að áhorf- endur undruðust, er konan var opnuð og við blasti laust í kviðarholinu barn ásamt 800 gr. af blóðlifrum. Barnið var líflítið, enda hafði konan fengið allmikið af deyfi- lyfjum þær 4 stundir, er liðnar voru, frá því að hún veiktist. Barnið lifði, sveinn 2600 gr. að þyngd, fæddur á afmælisdegi föður síns. — Móðirin fór heim á 22. degi og lagði barn sitt á brjóst. 12. júlí 1956. S. M. Lund-Hansen Geðsjúkdómar og taugaveiklun um meðgöngutímann og eftir fœðingu. Fyrirlestur fluttur af Wefring aöstoöarlækni viö Rönvikspítala á landsþingi norskra Ijós- mœörafélagsins í Bodö 1955. Orsakir og eðli. Það verður býsna erfitt að gera áheyrendum ljósa grein fyrir kvillum þeim, er hér um ræðir, vegna þess að við vitum alltof lítið um orsakir þeirra, einkenni og með- ferð. Við verður að hafa í huga ýmis atriði, sem til greina geta komið, ýmist ein sér eða hvert með öðru. Að sjálf- sögðu verður meðferð þessara kvilla einnig með ýmsu móti. Orsahir: Það liggur nærri að gera ráð fyrir því, að vakar (hormónar) konunnar hafi áhrif á andlegt ástand

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.