Ljósmæðrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 10
10
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Lengstur meöalaldur
Islenzkar konur eru taldar hafa lengstan meðalaldur í
heiminum eða 76 ár. I öðru sæti eru norskar konur, sem
lengi vel voru í efsta sæti, ásamt Svíþjóð, Hollandi, Frakk-
landi og Ukraniu.
Manntalsskrá Sameinuðu þjóðanna gefur þessar upp-
lýsingar. Þar stendur einnig að jarðarbúar hafi á miðju
ári 1967 verið 3.42 milljarðar talsins og hafi fjölgað um
65 milljónir frá árinu á undan. Mun því láta nærri að 180
þúsund börn hafi fæðst á hverjum degi þetta ár. Um %
hlutar jarðarbúa lifa eða öllu heldur draga fram lífið í
vanþróuðum ríkjum. Ljósmæðrablaðinu berst af og til
enska blaðið „International Planned Partenhood News“
— Alþjóða fjölskylduáætlun — og er þar margt athyglis-
vert að finna. Það mun nú almennt viðurkennt að offjölg-
un mannkynsins getur orðið skelfilegt vandamál á næstu
árum og þekktur amerískur næringarsérfræðingur pró-
fessor Georg Borgström, sem haldið hefir fyrirlestra víðs-
vegar á Norðurlöndum að undanförnu, sagði m. a. ,,Ef
ekki verður gripið til sérstaklega róttækra ráðstafana
mun í heiminum verða ólýsanleg hungursneyð innan 10—-
20 ára.“ Á næstu 10 árum eykst íbúafjöldi heims um
milljarð og jafnvel þótt öllum tiltækilegum ráðum verði
beitt til varnar munu 6 milljarðar manna þurfa á mat að
halda um næstu aldamót árið 2000.
Þar af munu % búa í vanþróuðum hlutum heims við
skort og vansæmandi lífskjör.
Eins og kunnugt er hefir páfi nú bannað með öllu getn-
aðarvarnir, og ofbýður jafnt trúuðum sem vantrúuðum
að milljónir manna skulu dæmdar til að hlaða niður