Ljósmæðrablaðið - 01.01.1969, Blaðsíða 12
12
LJÓ SMÆÐR ABLAÐIÐ
Alþjóða Ijósmœðraþing
í Chile
Það er nú þegar ákveðið að næsta alþjóðaþing ljósmæðra
verður haldið dagan 15-—22 nóvember 1969 í Santiago í
Chile.
Þótt nógur tími virðist til stefnu, er þess getið í Norð-
urlandablöðum ljósmæðra að mjög mikils virði sé, að
væntanlegir þátttakendur gefi sig fram eins fljótt og unnt
er. Ef nokkur veruleg þáttaka verður áætluð frá Norð-
urlöndum fást sérlega hagstæð fargjöld með enskri ferða-
skrifstofu Convoys Ltd, sem býður 16 daga ferð með við-
komu í Argentínu og Brasilíu. 1 tilboðinu felst flugferð
(frá Kaupmannahöfn t. d.) með þotu, hótel með morgun-
verði á tveggja manna herbergi með baði, hádegis-
verður, drykkjupeningar, ferðaskattur, smáferðir í Buen-
os Aires og Rio de Janeiro ásamt flutningi til og frá flug-
höfnum.
Áætlað verð frá Kaupmannahöfn er d. kr. 6.560.—, og
mun það vera talið óvenju hagstætt.
Það skal ekki dregið í efa að forvitnilegt mun vera fyrir
fslendinga að koma á svo fjarlægar slóðir. Þær ljósmæður,
sem telja sig hafa möguleika á þessari ferð eru vinsaml-
ega beðnar að hafa samband við frú Kristínu Tómasdóttur
yfirljósmóðir, Fæðingardeild Landspítalans.
J. J.