Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.09.1924, Page 6

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.09.1924, Page 6
20 T 1 M A R I T V. F. í. 1924. 1. mynd. Landsbankahúsið i Roykjavik. Landsbankahúsið. Landsbankahúsið, sem hjer fylgja myndir af, erán efa vandaðasta húsið, sem reist hefir verið hjer á landi, enda hefir ekkert verið til þess sparað, að húsið yrði sem fullkomnast. 1 brunanum 1915 skemdist gamla bankahúsið svo mikið, að ekki var unt að nota það áfram, flutti bankinn þá í pósthúsið og nokkru seinna i hús Nathan & Olsen. Um haustið 1921 ákvað svo bankastjórnin að reisa nýtt bankahús á sama stað og gamla banka- húsið stóð. Um veturinn 1922 var svo unnið að uppdrátt- unum, og um vorið var boðið út í ákvæðisvinnu, að koma húsinu undir þak og fullgera það að utan. Um haustið var húsið fokhelt, og um nýárið var boðin út öll múrvinna, innanhúss, og var henni lok- ið á miðju sumri 1923; um sama leyti var byrjað á tréverki innanhúss, og því iokið í byrjun næsta árs. Nokkru fyrir áramót var byrjað á málningu, og í lok febrúar var allri vinnu við bankahúsið lokið. 1. mars 1924 flutti bnnkinn í húsið. Alt húsið er úr steinsteypu, veggir, gólf og stig- ar, en þakið er úr timbri, klætt með þakskífu. í kjallara hússins er miðstöð, kolageymsla, eldföst geymsluhólf, herbergi fyrir bækur og almenningsbox. I almenningsboxi eru um 400 geymsluhólf og er all- ur frágangur þeirra svo góður, sem frekast er kraf- ist í nýtísku bönkum erlendis. A 1. hæð er afgreiðslusalur bankans, herbergi fyrir eftirlítsmann, og í öðrum endanum uppgangur á efri hæðirnar. Allir veggir í afgreiðslusalnum eru klæddir með „teaku-trés þiljum upp í 1,80 m. hæð frá gólfi, einnig er stigi úr bankasal og upp á 2. hæð og afgreiðslu- borð úr „teaku-trje. Allar súlur, plata á afgreiðslu- borði og gólf í almenningi, er klætt með marmara. Veggir fyrir ofan þiljur eru olíumálaðir, nema vestur-

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.