Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.07.1926, Síða 10

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.07.1926, Síða 10
28 T í M A R I T V. F. í. 1926 Aluminiumiðnaðurinn í Noregi. Á næsta ári er aluminiumvinslan 100 ára gömul. Var það þýskur maður, Wöhler að nafni, er fyrstur bjó til hreint aluminium og voru á því miklir örðug- leikar þá. Síðan hafa orðið miklar endurhætur á vinsluaðferðunum, svo að nú eru unnin rúm 200 þús. tonn árlega, er kosta 2.70 kr. hvert kg. En fyrir 40 árum var árleg vinsla ekki nema 30—40 tonn, og var verðið þá um 90 kr. hvert kg. Orsökin til þess að aluminium fanst ekki fyr en þetta, er sú, að málmurinn hefir svo mikla tilhneig ingu til þess að sameinast súrefni, og er svo fast bundinn því, að miklar framfarir þurfti áður i efna- fræði, til þess að takast mætti að skilja þessi efni sundur. Enn er það svo, að ekki verður notuð önnur stein- tegund en bauxit til aluminiumvinslu, enda þótt alu- minium sje til í fjölmörgum jarðlögum og steinteg- undum. Bauxit steintegundin er lireinsuð og losuð við alt járn, kísil, títan o. fl., og fæst þá úr henni hreint, hvítt duft; er það aluminium-súrefnissam- band. Til þess að leysa þetta samband, þarf mjög mikla orku. parf 5 árshestafla orku til þess að vinna 1 tonn aluminiums. pess vegna hefir aluminiumvinslan vaxið hröðum skrefum í Noregi, enda þótt flytja þurfi inn hráefnið, en það nægir, að vatnsaflið er ódýrara en víðast hvar annarsstaðar. pað voru útlendingar, sem í þessu efni sáu kosti vatnsaflsins norska og hófu aluminiumvinsluna þar. British Aluminium Co. byrjaði árin 1906—08 nálægt Kristianssund S. og við Stangfjörð í Norðfirði. pessi iðjuver starfa enn og vinna nú orðið yfir 3000 tonn árlega. Er ætlunin, að auka fyrra verið svo, að fje- lagið komist upp i 4000 tonna vinslu árlega. Árin 1914—16 voru reist tvö iðjuver til aluminium- vinslu, annað í Eydeliöfn við Arendal en liitt í Tysse- dal í Harðangri. Var það norska nítriðfjelagið, sem átti verin, en fjeð var franskt. 1 Eydehöfn eru unnin 5000 tonn árlega og í Tyssedal 10000 tonn. Enníremur er norska aluminiumfjelagið i Höy- angri, er bygði ver sitt 1916—19 og er nú með 6500 tonna vinslu. AIIs eru notuð 125000 hestöfl í Noregi til alumin- íumvinslu og unnin árlega 25000 tonn sem eru út- flutt að mestu leyli. Ennfremur er i ráði að stöðvarnar i Kinsarvik með 116000 hestöfl og Glomfjord með 75000 hestöfl noti aflið til aluminiumvinslu. Vex þá vinslan um 40000 tonn eða nærri þvi þrefaldast. Auk þess er nú byrjað á að vinna úr málminum innanlands, í stað þess að flytja hann allan út óunninn; var það norska alumin- iumfjelagið er fyrst bygði smiðju sína árið 1917 við Holmestrand. Eru þar smíðuð eldhúsáhöld, beröld og allskonar tæki önnur. Siðan hafa risið upp nokkrar aðrar smiðjur; smiða þær allar úr norsku aluminium. Útflulningur hefir síðasta ár verið 20000 tonn fyr- ir 55 og 60 miljónir króna og verður væntandega á næstu árum 100 miljónir ef ekki 150 miljónir króna árlega. (pýtt úr Teknisk Ukeblad). Ný rafmagnsklukka. Úrsmiðjan Laplace í Tschekoslovakiu, er farin að smíða nýjar klukkur eftir einkaleyfi Michl’s. Ganga þær fyrir rafmagni, þannig að lítill synkronmótor knýr þær og er snúningafjöldi hans færður, með tannhjólum og skrúfum, ofan í 1 snún. á klst. Mót- orinn gengur samfasa við vjelar rafstöðvarinnar, sem verða að vera riðstraumsvjelar, og þarf því að sjó um að riðfjöldi þeirra haldist jafn. Er til þess settur upp i stöðinni sjerstakur stillir, er það stunda- mælir (kronometer) í sambandi við motorklukku. Snúa þau hvor sínum stundavisinum. Sje meðalrið vjelanna rjett ganga báðir vísar eins, en annars verður að stilla rið vjelanna þangað til mótorklukkan gengur eins og stundamælirinn. Stundamælinn má gera skrifandi og sjálfstillandi. Má útbúa þetta svo nákvæmt að skekkjan verður aldrei yfir örfáar sek- úndur. Klukkumótorinn tekur ekki nema 2/10 wött. Klukkumótorinn hefir sjerstakan, sjálfvirkan ræsingarútbúnað, sem jafnframt sjer um að mótor- inn hvorki sveiflist í gangi nje falli úr fasi. Sveifarafl mótorsins, sem verkar á klukkuásinn, er meira en á nokkurri annari klukku, er því nægur kraftur til þess að draga upp fjaðrir eða lóð til þess að knýja slag- verk, hringingarverk og þ. h. og til þess að halda klukkunni í gangi, þótt straumurinn hverfi um stund- arsakir. 1 Tschekoslovakiu er alment 1‘arið að nola þessar klukkur og nú er verið að gera tilraunir með þær við rafstöðina í Postdam. Hafa þær tilraunir gengið vcl, það sem af er. Sumstaðar þar, sem farið er að nota þessar klukkur, eru það stöðvarnar, sem leigja Iþær út, líkt og mæla, en annarsstaðar taka notend- urnir þátt í kaupunum. (Pýtt). FjelagsprentsmiÖjan.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.