Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1907, Síða 5

Freyr - 01.01.1907, Síða 5
J^REYR. Lög um útflutning hrossa. í fyrra sumar (1905), þegar eg kom heim af sýningunni í Kaupmannahöfn laust eftir miðjan þingtímann, hafði eg í hyggju að koma inn á þingið lagafrumvarpi um útflutning á hrossum. Eg átti tal um málið við marga þingmenn, og tóku flestir því vel. Við nánari athugun komst eg þó að þeirri niðurstöðu, að réttara mundi vera, að láta málið bíða næsta þings, svo bændum gæfist kostur á að athuga það, og koma með sínar tillögur. Það, sem fyrir mér vakir, er: 1. Að auka álit á íslenzkum hestum í útlönd- um, með því að banna útflutning á ungum og gömlum hrossum, og á öllum hrossum, er hafa verulega galla eða lýti, eru mögur eða illa útlítandi. 2. Að koma í veg fyrir þá ómannúðlegu með- ferð, er hrossin verða oft fyrir í flutningn- um, og þann skaða, er af því leiðir fyrir eigendur hrossanna og vanvirðu fyrirþjóðina. S. Að gjöra hrossin arðmeiri og ábyggilegri útflutningsvöru en þau eru nú. Á árunum 1895—1904 voru flutt til útlanda 28517 hross samkvæmt Landshagsskýrslunum eða 2852 að meðaltali á ári. Líklega eru þó þessar tölur of lágar, því einstakir menn senda oft fleiri og færri hesta til útlanda, og er hætt við að stuudum gleymist að gefa landsstjórn- inni skýrsiu um það, enda þekki eg dæmi þess. — Andvirði hinna útfluttu hrossa á nefndu 10 ára tímabili var 1526961 kr. eða 152696 kr. á ári að meðaltali. Mest var flutt út af hrossum 1899 5116, en minst 1897 aðeins911. Meðalverð útfluttu hrossanna á þessu 10 ára timabili hefir verið 53,54 kr., hæst meðalverð 1904 tæpar 60 kr. og lægst 1903 aðeins 46 krónur. Af öllum þeim hrossum, er út hafa verið flutt á nefndu tímabili, hafa 2029 verið seld í Danmörku eða 7 af hverju hundraði. Hin öll eða því sem næst hafa verið seld á Bretlandi. Ennþá eru eigi komnar tillandsstjórnarinnar allar skýrslur um útflutning hrossa fyrir árið 1905, vantar úr Dalasýslu, Eyjafjarðarsýslu og Suður-Múlasýslu, en úr þeim sýslum hafa eigi verið flutt út hross að undanförnu svo neinu verulegu nemi. Samkvæmt þeim skýrslum, sem fyrir hendi eru, hafa verið flutt til útlanda árið 1905 3936 hross, þar af selt á Bretlandi 2693 en í Dammörku 1243 eða 32°/0 af öllum útfluttum hrossum. Andvirði hinna útfluttu hrossa nam 244873 kr., meðalverð 62 krónur. Hrossin, er seld voru í Danmörku, seldust mikið betur en hin, á 71Y2 kr. að m.t.,en þau sein seld voru á Bretlandi á 58 krónur. Árið áður (1904) var meðalverðið á hrossunum, sem seld voru í Danmörkn og á Bretlandi svo að segja eins, 59,73 kr. og 59,56 kr. — Hinnveru- legi verðmunur (ÍS1/^ kr.) á hrossunum, sem seld voru í Danmörku árið 1905, og þeim, er seld voru á Bretlandi, á óefað rót sína að rekja til hluttöku Landsbúnaðarfélagsins í sýningunni í Kaupmannahöfn það ár, og af sömu ástæðum mun það vara, að svo mikið meira var flutt af isl. hestum til Danmerkur 1905, miklu meira en nokkru sinni áður. Dessar tölur, er hér hafa verið nefndar, sýna ljóslega að útflutningur á hestum hefir verulega þýðingu fyrir landbúnað vorn, þrátt fyrir hið afar lága verð á hrossunum. í>á virðast áhrif þau er hluttaka vor í sýningunni í Kaup- mannahöfn hefir haft á hrossamarkaðinn íDan-

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.