Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1907, Síða 9

Freyr - 01.01.1907, Síða 9
FREYR. 5 Árið 1906. Hið liðna ár hefir verið að mörgu leyti -erfitt og óliagstætt til lands og sjávar. Um miðjan janúar í fyrra brá til umhleyp- inga og snjókomu, og upp frá því var svo að segja óslitið vetrarríki og hörkur með köflum um mikinu hluta lands. Fyrir og um sumarmálin leit út fyrir bata og viðraði þá vel um tíma, en það stóð ekki lengi, því um 26. apríl rauk á eitt með allra mestu norðanveðrum og íylgdi því iðulaus stórhríð um alt land nema hvað hríðin var vægari og snjókoman mikið minni hér syðra. Þetta norðanveður stóð í hálfan mánuð, en sama veðurreynd og gróðurleysi hélst fram í júní. Gáfu sumir fé, er það gátu, hér sunnan- lands, fram að 20. maí og sumstaðar enn leng- ur. Gjafatiminn varð því langur, víða 18— 20 vikna innistaða, svo að segja fyrir allar skepnur. — Heyskortur talsvert almennur, einkum norðanlands. Eellir á fénaði þó eigi til- finnanlegur eða almennur, þrátt fyrir vorharð- indin. Það sem bjargaði voru kornbirgðir víða í kaupstöðum og lifði fénaður sumstaðar mjög á korni er á leið. — í Skagafirði varð þó nokkur fellir á hrossum, en þó minni en útleit fyrir um tíma, og einstök hepni að hrossaíjöldinn þar varð eigi til þess að allur •fénaður stráfélli, enda mun þar hafa „skollið hurð nærri hælum“. — Ejárskaðar urðu nokkr- ir í norðangarðinum síðustu dagana í apríl, með þeim hætti, að féð hrakti í ár og vötn. Sökum vorharðindanna og kuldans fram eftir öllu vori spratt jörðin seint; en víðast hvar varð þó grasvöxtur sæmilegur á endanum. Þó voru mýrar alstaðar illa sprottnar. Veðuráttan um heyannir misbrestasöm og heyskapur misjafn, bæði að gæðum og vöxtum. Á Suðurlandi, austur að Markarfljóti, varð heyskapurinn tæplega í meðallagi en nýting fremur góð, fram í byrjun september. En þá brá til óþurka og vætu og varð því slátturinn endasleppur. Um Vesturland var sumarið gott og heyskapur í meðallagi eða vel það. Margir áttu úti hey, er veðuráttan breyttist í septem- ber, þetta 20—60 besta og sumir meira, er al- drei náðist. — í Skaftafellssýslum og austur- hluta Rangárvallasýslu var veðuráttan óhag- stæð fram undir septembermánaðarlok, og heyskapur þar af leiðandi rýr. Á Austurlandi í Múlasýslunum var sumarveðuráttan köld og úrkomusöm. Grasspretta misjöfn og víða lak- leg mjög. Nýting á heyi, einkum á töðu, hin versta og heyafli yfir höfuð rýr og ekki góður. Svipað þessu viðraði í Þingeyjarsýslum, en betur eftir því sem vestar kom, og heyjaðist ekki illa í Skagafirði, en þó betur í Húna- vatnssýslu. Haust veðuráttan stirð og umhleypingasöm um alt Suður- og Vesturland. Betri norðan- lands og austan. Þann 17. nóvember gjörði norðanhríð mjög snögglega, og á auða jörð og urðu þá töluverðir fjárskaðar f því veðri, einkum sunnanlands. Eéð fenti og hrakti í ár og vötn; en margt af þvf náðist aftur lifandi úr fönninni. Mestir fjárskaðar urðu í Stardal f Kjalarneshreppi og Eiskilæk í Borgarfirði, um 50 fjár á hvorum bænum. Þá fórst um 30 fjár á Árbæ í Ölfusi og margir ' aðrir mistu meira og minna. Svo var fannkoman mikil í þessari norðanhrfð, að hesta fenti og 3 til dauða. — Harðindi og innistaða á öllum fénaði seinnipart nóvember og allan desember. Útlitið víða mjög ískyggi- legt, að því er snertir heybirgðir og skepnu- höld. Fénaðarliöld hafa vlða verið slæm þetta ár eins og sést af þvi, sem sagt hefir verið. Lambadauðinn töluverður, og svo að segja al- menn vanhöld á fé. Bráðapest gert nokkuð vart við sig austanfjalls og víðar, og lungna- veiki stungið sér niður hér og þar. Garðrœkt víða léleg þetta ár sökum vor- kuldans og hretsins um miðjan júlí, og sum- staðar brugðist alfarið, einkum norðanlands og austan. Verzlunin fremur góð. Ull með svipuðu verði og í fyrra, hæðst verð kr. 1,15 fyrir pundið. Hrossasala með mesta móti út úr landinu. Elest hrossin seld fyrir milligöngu kaupfélaganna, en verðið yfirleitt lágt á þeim. Illa látið af meðferð þeirra í útflutningnum og

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.