Freyr

Volume

Freyr - 01.01.1907, Page 10

Freyr - 01.01.1907, Page 10
6 FREYR. kent um slæmum útbúnaði á flutningaskipunum og er slíkt óaísakanlegt, hver sem í hlnt á. — Sent var út í haust 8000 íjár, þar af 3000 til Belgíu og er það í annað sinn, sem fé er sent þangað til sölu og þykir gefast vel. Elest var féð úr Þingeyjarsýslu, 4500, úr Skagaíirði og og Húnavatnssýslu 1750, úr Múlasýslunum 1500 og 200 úr Eyjaíirði. Eéð seldist fremur vel, þetta írá 16--20 kr. hver kind. Verðið á sláturfénaði svipað og í fyrra, og eigi lakara. Gærur í háu verði. Smjörbíán hin sömu og í fyrra. Stóð til að stofna 2 ný bú, annað í Staðarsveit í Snæ- fellsnessýslu, en hitt í Staðarhreppi í Skaga- firði. En vegna ótíðarinnar í vor og þess illa er af henni leiddi, var frestað að setja búin á stofn. Smjörframleiðsla búanna í fyrra mun hafa verið, eftir skýrslumsmjörbúanna, nálægt 295,000 pd. alls. Þar af selt innanlands 10,000 pd. Hitt sent til Englands og selt þar. I þetta sinn var framleiðslan heldur minni. Frá Suð- urlandi hafa verið send út yfir 200,000 pd. Smjörið hefir selst heldur lakar en í fyrra, en þó yfirleitt heldur vel. Nautgripafélögin, tala þeirra og kúafjöldi svipaður og hann var i íyrra. (Samanber „Erey“ bls. 11). Jarðabætur töluverðar á árinu, en þó held- ur minni norðanlands og vestan en að undan förnu. — Plægingar fara heldur í vöxt, og plægingarkensluna í Brautarholti notuðu 6 piltar síðastliðið vor. Sláttuvélum fjölgar og notkun þeirra eykst Þetta ár voru keyptar 7 vélar. Þeir sem þær fengu voru: Agúst Helgason Birtingaholti, Brautarholtsbúið (eign Sturla Jónssonar), Egg- ert Einnsson Meðalfelli. Guðmundur Þorvarðar- son Sandvík, Ræktunarfélag Norðurlands, Vig- fús Þórðarsson prestur á Hjaltastað, og Þor- steinn ThorarenseD á Móeiðarhvoli. I fyrra höfðu og 2 bændur austanfjalls fengið sér sláttuvélar, og gefist vel. Þessar sláttuvélar eru nefndar „Herkules“. Mælingar í Elóanum og á Skeiðunum má einnig nefna sem nýjung. Voru þær fram- kvæmdar að tilhlutun Búnaðarfélags Islands, og í þeim tilgangi að rannsaka hvort vatn vir Hvítá og Þjórsá næðist upp til áveitu yfir þessar sveitir og hvað slík vatnsveiting mundi kosta. Aætlun um kostnaðinn enn ekki lokið. Þá er á prjónunum stofnun sláturhúss í Reykjavík fyrir Suðurland, og á Seyðisfirði fyrir Eljótsdalshérað, eða Austurland. Ameríkuferðir voru með minna móti þetta ár, eitthvað nálægt 100 manns, er fóru. Aftur á móti hafa sest hér að nokkrir Norðmenn, er voru við símalagninguna þetta ár. Bœkur um landbúnað hafa eigi komið út þetta ár, aðrar en Ársrit Ræktunarfélagsins, Búnaðarritið, Freyr og Blógur. Til stórviðburða á árinu liðna telst ritsíma- lagningin. Við lagningu sæsímans lokið 28. ágúst og við landsimann seint í september.. Eyrstu símskeyti hingað frá útlöndum, alla leið til Reykjavíkur komu þann 29. sept. Þá má telja Danmerkurför þingmannanna merkisviðburð í sögu þessa árs, og væntu margir góðs af þeirri för, hver sem reyndin verður. Loks er að geta þess, sem eigi er minnst um vert að á þessu ári hafa orðið meiri mann- skaðar á sjó, en átt hefir sér stað um langan aldur. Hafa farist 100 manns af þilskipum, og auk þess 20 menn, er druknað hafa á opnum skipum. Efnt var strax til samskota handa eftirlifandi ekkjum og börnum hinna druknuðu, er flestir voru fátækir menn, og nema þau 32 þús. kr. alls. Yfir höfuð hefur árið verið viðburðarikt að mörgu leyti, en jafnframt erfitt landsmönn- um í mörgum greinum, og skaðaár mikið bæði á sjó og landi. S. S. Sandgræðsla. Eramh. Álftaver er flatlend Sveit eins og Meðal- landið; liggur það um */* mílu frá sjó. Land- ið milli sjávarins og bygðarinnar er grasigró-

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.