Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.09.1935, Síða 9

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.09.1935, Síða 9
TÍMARIT V.F.I. 1 9 35. 35 rofin. í dimmu ástandi loftlegundanna ganga ljós- elektrónurnar, ein eða fleiri, á innstu brautum i atominu. En þegar lausar elektrónur og atom í bogaljósinu eða neistanum eða ljósskammtar frá brennandi efnum mæða á þeim, hrökklast þær á ytri brautir. Falla þær þó jafnharðan lil baka og gefa frá sér ljós um leið. Brátt myndast jafnvægis- ástand þannig, að i vissum hundraðshluta atóm- anna er yzta elektrónan á tiltekinni braut á hverju augnabliki. Við aukinn fjölda og liraða liinna ut- anaðkomandi eleklróna og ljósskammta komast fleiri og fleiri elektrónur á yztu brautirnar og þar kemur að lokum, að elektrónur fara að losna al- gert við atomin, þau ioniserast. Fer þá næstyzta elektrónan að framleiða ljós. Hafi í atóminu ver- ið n elektrónur, svipar ioninu til atom með n—1 elektrónu, að öðru leyti en þvi, að kjarnahleðslan er einni einingu hærri i ioninu en atominu. Af- leiðingin verður sú, að litrof ionsins líkist í aðal- dráltum litrofi næsta efnis á undan í per.-kerfinu. Við liverja nýja ionisation flyzt litrofið á sama liátt fram um eitt sæti, sem skýrir ágætlega reglu Kossels og Sommerfelds. III. Sólin. Hér hefir nú verið drepið á nokkur helztu at- riði litrofsfræðinnar og samband litrofanna við bið ])er. kerfi frumefnanna og byggingu atomanna. Hefir verið sýnt, hvernig skýra má lilrof hinna ein- faldari efna út l'rá hugmynd Bohrs um byggingu atomanna. Þegar um flóknari atom er að ræða, hefir regl- an orðið sú, að revna að ráða byggingu þeirra í einstökum atriðum af litrofinu, en leggja til grund- vallar atommynd Bolirs. I þeim tilgangi er reynt að finna terma í litrofinu og þeir svo seltir i sam- band við brautir ljóselektrónanna. Hafi tekizt að finna alla helztu terma atomsins, er ekki aðeins fengið tákn fyrir þær litrofslínur, sem lagðar hafa verið til grundvallar við termaleitina, lieldur og allar aðrar línur, sem kunna að koma í ljós við breytt skilyrði. Það má með öðrum orðum fara nærri um það, hvaða stakkaskiptum litrofið muni taka við ytri áhrif. Með því er stigið stórt spor fyrir stjörnuvísind- in. Menn eru nú ekki, hvað rannsóknir snertir, bundnir við þá staði, ])ar sem skilyrðin eru í aðal- atriðum þau sömu og hægl er að framkalla á til- raunastofum, heldur geta eðlisrannsóknir efnisins í gegnum litrofið einnig náð til fjarlægra stjarna og vetrarbrauta, þar sem efnið verður að þola þrýsting og hitaslig, er yfirstíga djörfustu drauma tækninnar. Það er augljóst, að þegar finna skal með reikn- ingi áhrif hita og þrýstings á litrofið, er allt undir því komið, að atommyndin, sem reikningarnir 3. mynd. Samanburðarmynd á stærð sólar og tunglbraut- inni. Ath. jörðina, sólblettina og protuberausana á mynd- inni. byggjast á, sé sem fullkomnust. Vér höfum séð hér að framan, að Bohr getur skýrt með fyllstu ná- kvæmni litrof vetnisins og aðaldrættina í litrofi al- kalimálmanna. Atommyndin hefir og reynst ágæt- lega nothæf til þess að skýra flóknari litrof i stór- um dráttum, enda þótt nákvæmum reikningi verði sjaldnast við komið. Þess vegna hefir ekki verið hikað við að bvggja ályktanir um ástand efnanna á öðrum linöttum á atommynd Bohrs. A seinni árum hafa „quantamekanik“ Heisen- bergs og bylgju-„mekanik“ Sclirödingers komið til sögunnar og gefið miklu fvllri skýringu á litrof- unum en Bohr. En það, sem Heisenberg og Schrödinger hafa fram vfir Bohr við grundvöllun aðferðanna og ná- kvæmni reikningsins, vinnur Bohr upp með glöggri mynd af atominu, sem gefur réttar niðurstöður í aðalatriðum. Verður því hér á eftir ávallt gengið út frá hugmynd Bohrs. Indverslci eðlisfræðingunnn M. N. Saha fann ár- ið 1920 samband á milli hita og þrýstings i loft- tegund annars vegar og ionisationarinnar hins veg- ar, og felst það í eftirfarandi líkingu: l0g (ll^ P ) = ^ 5043 T + 2’5 log T fi’5’ þar sem T er hitinn, P þrýstingur, U ionisations- potential = vinnan, sem þarf lil að rífa yztu elek- trónu úr atomi; x er fjöldi ioniseraðra atoma og (1—x) fjöldi liinna óskertu, sem brot af skertum og óskertum samanlögðum. Af líkingunni leiðir, að ionisation evkst með vaxandi liita og þverrandi þrýsting og er að öðru jöfnu því meiri, sem u er lægra, þ. e. atomið lausbyggðara. Eftir líkingu Saha’s verður að álíta, að öll efni séu marg-ioniseruð við þau skilyrði, sem búast má við inni í sólinni.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.