Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.1925, Síða 12

Freyr - 01.11.1925, Síða 12
98 FREYR Hirðing sláttu- véía. Eitthvert þýðing- armesta atriðið í hirðingu og með- ferð sláttuvélanna er að bera vel á þær — góða olíu — Myndin sýnir alla staði á sláttuvélinni, sem smurningar þarfnast. Sérstak- lega verður að bera vel á þá staði sem örfarnar, með hnúð- in á endanum, benda á Á. G. E. Norsk-Hydro. Noregssaltpéturinn o. fl, Rúmar 10 milj. króna var ársarður þessa félags síðastliðið reikningsár. Aðal- framleiðsla félagsins er Noregssaltpétur- inn, — áburðurinn sem bændur eru óð- um að kynnast — og það að góðu. Árið 1923 voru flutt til íslands 102764 kg. af Noregssaltpétri, (alls 211684 kg. af tilbún- um áburðarefnum), og síðan hefir notkun- in aukist mjög mikið. Kaupfélagið í Osló (Fælleskjöpet) aug- lýsir 15. nóv. að verðið á Noregssaltpétri sé þá, og fyrst um sinn norskar kr. 27,60 hver 100 kg. ef keypt eru 5000 kg. eða meira í einu, og 27,80 ef minna er keypt. Þetta verð gildir um áburðinn tekinn á afhendingarstöðvum (útskipunarhöfn og járnbrautarstöð) verksmiðjunnar, og greíðslufrestur er framundir 25. júní. Það heflr verið mjög mikið ólag á verzl- uninni með tilbúinn áburð hér á landi undanfarin ár. Undantekningarlítið hefir áburðurinn komið ofseint til landsins til að komast í tæka tíð á hafnir kringum land, og á jörðina. Undantekningarlaust hefir áburðurinn komið ofseint til að hægt væri að nota vetrarfærið til að koma honum fram til sveita, — en það er viða höfuðskilyrði fyrir því að flutningskostn- aðurinn frá höfn og beim til bænda drepi ekki möguleikana fyrir arðvænlegri notkun tilbúins áburðar. Mér er kunnugt um það, að undanfarin ár hafa kaupfélögin í Noregi orðið að af- henda áburðarpantanir sínar til Norsk- Hydro fyrir febrúarlok, til þess að eiga víst að fá nægilega mikið af saltpétri. Pöntunum, komnum eftir þann tíma, heflr verið erfitt að fullnægja svo í lagi væri. Hingað til landsins mætti tilbú- inn áburður ekki koma síðar en um mánaðamótin marz—apríl. Lægi beint við, ef verslanir sem við þetta fást vildu gera landbúnaðinum gagn (og sjálf- um sjer um leið) að semja við Eimskipa- félag Islands að láta eitt af skipum sín -

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.