Freyr - 01.03.1930, Síða 28
56
FREYR
TTTP.^TTPTTTTTTT'T1 7FP.TTT
Bændur, við smíðum fyrir ykkur mjög vönduð anboð úr því besta efni, sem hægt er
að fá: — Hrífusköft og orf úr pólskri furu, fínslípuð og olíuborin. — Hrífuhausa úr
fyrsta fl. bæki (brenni), gataðir, fínslípaðir, olíubornir, með sérstaklega góðu lagi. —
Hrífuklær úr stáli, liprar, léttar og sterkar.
Hrífutinda úr stálalúminium, sem eru sérstaklega léttir og sterkir, þeir bogna ekki
né brotna og ryðga aldrei, eru sérstaklega lagaðir í efri endann, þannig að þeir ganga
ekki uppúr hausnum, en sitja altaf jafnfastir, þeir eru stálharðir og slitna mjög seint.
Betri tinda er áreiðanlega ekki hægt að búa til.
Orf smíðum við úr furu og eski, mismunandi stór og sterk við allra hæfi.
Hrífurnar eru einnig mismunandi gildar, liprar rakstrarhrífur og gildar söxunarhrífur.
Þar sem við aðeins notum svo gott efni, getum við búið til níðsterk anboð, þótt
þau séu lipur og létt, og vegna þess að við framleiðum þau í stórum stíl, getum við
selt þau merkilega ódýr, þótt svo mjög sé til þeirra vandað, hvað efni, vinnu og allan
frágang snertir. — Fleiri þúsund hrífur, frá okkur, voru í notkun síðastliðið sumar,
víðsvegar um sveitir landsins.
Þeir, sem ekki ennþá hafa getað náð í anboð frá okkur, hjá þeirri verslun,
sem þeir að jafnaði skifta við, ættu að snúa sér strax til okkar.
Trésmiðj am HTj ölii_ix'
Kirkjustræti 10 — Reykjayík Sími 52336 — Símnefni Fjöl.
Steinmálningin »Bondex«
er sérstaklega gerð til þess að mála stein og steinsteypuveggi. „Bondexu litar ysta
lagið í veggnum og myndar vatnsþéttan glerung. Það er sérstaklega sterk og ending-
argóð málning, sem ekki springur, flagnar né brotnar af veggnum. Það er langtum
fljótlegra að mála með „Bondex“ en nokkurri annari málningu, og þar að auki er
þetta allra ódýrasta málningin, sem hægt er að fá.
„Bondex“ fæst í mörgum breytilegum litum.
Hefl birgðir fyrirliggjandi. — Gef þeim er óska nánari upplýsingar.
Sigfús Jónsson
í trésmiðjunni Fjölnir, Kirkjustræti 10, Reykjavík. Sími 2336.
Einkaumboðsmaður á íslandi fyrir The Reordon Company, Chicago.