Einherji - 15.12.1970, Síða 12
JÓLABLAÐ 1970
EINHERJI
1
Stundum, þegar ég hef
horft á Sjukrahúsið utan úr
bænum, þar sem það stendur
hátt á hæð og ber við him-
inn, dettur mér í hug, að það
sé eins og höll í Tíbet.
Ég veit ekki hvernig á
þessu stendur, en ef til vill
er það vegna þess, að ég man
enn þá eftir mynd í jóla-
kveðju, sem stóð á hárri hæð.
I hinum heiðnu hofum Aust-
urlanda, sem við köllum svo,
hefur fyrr og síðar þróazt
andleg menning. Innan vegg-
]a þeirra hafa verið til menn,
sem með andlegri þjálfun
hafa getað rofið þekkt og
viðurkend lögmál efnisheims-
ins. Jókarnir svonefndu geta
vaðið eld og látið grafa sig
lifandi án þess að efnislíkam-
ann saki. Og ekki er öll sagan
sögð. Pyrr á öldum voru
víða um lönd reistar hallir
á hæðum, sem voru vamar-
virki í styrjöldum og oft
óvinnandi, þegar barizt var
um frelsi þjóða. Þessar hall-
ír standa víða ennþá og
vitna um sitt hlutverk. Slíkar
fornminjar era ekki til á ís-
landi, því Renesansinn eða
endurreisn Evrópu hófst á
15. öld, en það þýðir fram-
farir í listum, vísindum og
iðnþróun eða tæknileg mennt
íslenzk tunga hefur eitt
orð yfir þetta: menning.
Orðið menning tekur þó yfir
meira. Það er trú á æðri
máttarvöld, en það sem að-
skilur mannskepnu frá öðr-
um skepnum jarðarinnar er
það, að maðurinn veit um
sitt æðra eðh en aðrar skepn
ur ekki.
Loksins á þessari öld
hefur renesansinn borizt til
íslands.
2
íslendingar eiga nú marg-
ar hallir. Við sitjum hér
innan virkisveggja. Innan
þessara veggja í þessu húsi
er háð barátta fyrir þjóð-
frelsi. Hér rís menningin
hæst í héraði voru. Vísindi
og listir rísa hér hæðst og
hér er trúboðsstöð. Það er
hið þögla trúboð, að sýna
trú í verki. Og ekki er hægt
að sýna trú betur á annan
hátt en að hjúkra sjúkum af
alúð og samvizkusemi.
Þetta hús er hið lang-
stærsta í sýslunni og form
þess bæði listrænt og tákn-
rænt. Stallarnir í bygging-
unni geta táknað leið manns-
',ns tröppu af tröppu upp til
Guðs eins og stuðlabergið í
turni Hallgrímskirkju.
Dagurinn í gær er saga og
þeirri sögu verður ekki
breytt, en dagurinn á morg-
un er hulinn móðu hins ó-
komna tíma.
Tímaskipti áramótanna
hafa alla tíð verið fslend-
ingum hugstæð. Þau hafa
speglað „trú og vonir lands-
ins sona.“ Og skáldin hafa
ort hstræn ljóð um þessi
tímaskipti.
„Sefur þú sveinn og snót,
senn koma tímamót,
vaknið, ó, vaknið af dvala,“
kvað Matthías.
Feður vorir og mæður
trúðu því, að álfar færu bú-
ferlum á nýársnótt, og þá
flvarp a nyarsnott
Flutt í Sjúkrahúsi Sauðárkróks 1965.
nótt gátu dulrænir menn ráð-
ið ýmsar rúnir hins ókomna
tíma.
Einhvemtíma las ég þjóð-
sögu, sem var á þessa leið:
Maður nokkur sem dulvís
var vakti í kirkju á nýárs-
nótt th þess að sjá, hvað
margir yrðu jarðaðir frá
þeirri kirkju á komandi ári.
Lengi nætur varð maður
þessi einskis var, en rmdir
morguninn opnaðist kirkjan
og líkkista var borin inn.
Þessi sýn þótti koma heim
en á næsta ári var aðeins
einn maður jarðaður frá
þessari kirkju undir árslok.
Það var trú feðra vorra,
að oft væri mark að draum-
um og vil ég nú segja draum
Eiriks í Vallholti.
Á fyrstu tugum þessarar
aldar bjuggu í Ytra-Vall-
holti þeir bræður Eiríkur og
Jóhannes. Þeir bjuggu félags
búi með foreldrum sínum og
var bú þeirra eitt hið stærsta
í sýslunni. Sauðfé sitt ráku
þeir á Eyvindarstaðaheiði, en
það mim hafa verið um
fimm hundruð, þegar flest
var.
Eiríkur fór jafnan í göng-
ur á Eyvindarstaðaheiði með
húskarla sína, og var
fyrirmaður Skagfirðinga þar
á heiðinni, enda var hann
mikils metinn fyrir marga
hluti.
Haustið 1926 á laugardag-
inn fyrir göngur fór Eirík-
ur ásamt fleiri Skagfirðing-
um vestur að Fossum. og
gistu þeir þar. Næsta dag,
gangnasunnudag var farið
fram að Herjól í Guðlaugs-
tungum. Eiríkur svaf inn í
baðstofu á Fossum. Morgun-
inn eftir sagði hann draum,
sem var á þessa leið. Honum
þótti hann vera í baðstofunni
þar á Fossum. En þá var
barið að dyrum og gekk Ei-
rikur fram í göngin, því hon-
um fanst, að sá sem kominn
var ætti erindi við sig og
vildi sér ekki vel. Bæjar-
hurðin var lokuð. Komu-
maður barði að dyrum í sí-
fellu og loks sá Eiríkur að
broddur á staf gekk í gegn-
um hurðina. Höggin héldu
áfram og gatið á hurðinni
stækkaði svo mikið, að Ei-
ríki fannst, að komumaður
mimdi senn komast í gegn
um það. Við þetta vaknaði
Eiríkur og hljóðaði svo hátt
í svefninum að allir glað-
vöknuðu sem í baðstofunni
sváfu.
Um morguninn sagði Ei-
ríkur drauminn og þótti
hann ekki góður. Hann spáði
því, að illa mundi ganga í
göngunum. En það fór ekki
eftir. Bezta veður var í göng-
um og allt gekk vel. En
Eiríkur í Valiholti fór ekki
oftar í göngur á Eyvindar-
staðaiheiði. í júní næsta vor
fór Eiríkur að reka gemlinga
vestur á Fossdal. í þeirri ferð þótt miklu sé ekki að
veiktist hann af brjóst-
himnubólgu. Hann andaðist
í sjúkrahúsi Sauðárkróks 23
júlí 1927.
Enginn veit sína æfina
fyrr en öll er, segir máltæk-
ið. Og ég veit ekki fremur
en aðrir hvenær mín æfi er
öh. Ef til vill verður hún öll
á komandi ári, ef til vill síð-
ar. Eúi það veit ég að mín
kynslóð, við sem erum fædd
á 1. tug þessarar aldar hverf-
um senn. En ég get kannske
tekið undir með skáldinu:
Mér eru í f jörunni margir
hjá,
hverfa frá,
til ferðar er fjöldinn tregur.
Því grunsamlegt er hið
gamla far,
gátur torræðar leynast þar
og skipstjórinn skuggalegur.
Ég óttaðist líkamlegar
þjáningar, sem oft eru sam-
fara skilnaðinum við efnis-
heiminn og er mannlegt.
Annað óttast ég ekki. Ég get
sagt eins og Ólafur Thor-
arensen: „Ég verð eftir lík-
amsdauðann þar sem fólkið
er.“ í umkomuleysi míns ald-
urdóms hugsa ég gott til að
njóta hjálpar og hjúkrunar
í þessu húsi á meðan ég bíð
eftir fari í þessari höll vís-
inda og lista.
Á þessari stund er réttur
tími til, að þakka starfsfólki
sjúkrahússins fyrir liðið ár.
Ég met og virði störf þess
og flyt þvi einlægar þakkir.
Ég þakka læknum, sem skera
botnlanga með vísindalegri
nákvæmni. Og alveg eins
þakka ég stúlkunni, sem
þurrkar rykið, sem alltaf kem
ur þó aftur. Öll störf, sem
unnin eru af trúmennsku
eru mikilvæg.
Á þessari stundu hugsa ég
með hlýjum huga til Hall-
fríðar Jónsdóttur, sem nú er
horfin. Um áratugi hafði
hún þjónað í sjúkrahúsi
voru. Fjöldi manna hafði
notið hjúkrunar hennar og
fengið heilsuna aftur og
fjölda manns hafði hún veitt
hinztu þjónustu. Foreldrum
mínum báðum veitti hún ná-
bjargir.
Ég óska starfsfólki sjúkra-
hússins gæfu og gengis á
komandi ári. Ég óska því árs
og friðar.
Bjöm Egilsson,
Sveinsstöðum.
GIRÐING TIL VARNAR
SNJÓFLÓÐUM
Framhald af 1. síðu
Girðingin er úr járnstaur-
um, sem á eru strengdir
stálvírar og net úr sérstöku
gerfiefni fest á. Er þetta
eftir norskri fyrirmynd, en
þar hafa shkar girðingar
gefið góða raun. Siglufjarð-
arbær leggur til efnið og
tæknilegan undirbúning, en
félagar úr Slysavarnadeild-
inni, ásamt nemendum úr
Gagnfræðaskólanum, tóku
að sér að bera efnið uppeftir,
sem var mikið og erfitt verk
og síðan vinna að uppsetn-
ingu girðingarinnar.
Er hér um lofsvert fram-
tak að ræða, sem þakka ber.
Bækur fyrir unga
fólkið
Siglufjarðarprentsmiðja
gefur út.
DÍSA. Bók pessi er gerð eftir
hinum heimsl>ekktu sjónvarps-
kvUímyndum af Dísu ojj Tony
Neison geimfara. Bókin er falleg
og góð jólagjöf.
BONANZA: Ponderosa í hættu.
Bók þessi er byggð á einum af
hinum heimslveitktu sjónvarps-
þáttum um Bonanza.
GUSTDB og leyndarmál klofnu
furunnar. Bókln er gerð eftir hin-
um heimsbekktu sjónvarpsþáttum
um hestinn Gust og Jóa vin hans.
JONNI KNATTSPYBNUHETJA
er saga af djörfum dreng, sem
bjargar vini sínum úr miklum
vanda og færir liði sínu sigurinn
í örlagaríkri knattspymukeppni.
LOTTA BJABGAE ÖUUU. Uottu-
bækurnar eru eftirlætisbækur allra
ungra stúlkna. I»etta er níunda
Uottubókin.
SIGGA UÆTUB GAMMINN
GEYSA. Petta er 16. Siggu-bókin.
TABZAN HINN SIGUESÆUI.
Páll Sigurðsson íslenzkaði.
DlANA VEBÐUB SKYTTU-
DBOTTNING. Þetta er 2. Díönu-
bókin. Eins og fyrsta Díönu-bókin
Merki 14. Uandsmóts U.M.F.Í.
á Sauðárkróki 10.—11. júlí 1911
Landsmót U.M.F.Í. 1971
Þriðja hvert ár mætast
ungmennafélög hvaðanæva
af landinu á Landsmóti
UMFÍ og gleðjast við leik
og skemmtan og keppni. —
Dagana 10.—11. júlí næsta
sumar verður 14. Landsmót
UMFÍ háð á Sauðárkróki.
Ungmennasamband Skaga-
fjarðar annast undirbúning
og framkvæmd mótsins.
Verulegt átak er gert í
byggingu íþróttamannvirkja
á Sauðárkróki til þess að
geta boðið upp á sem bezta
aðstöðu til keppninnar. Gerð-
ur hefur verið nýr grasvöll-
er þessi bólc hrífandí og fögur
telpnabók.
Fjórar ævintýrabækxu1 fyrir
börn:
GBENITBÉÐ, gullfaUegt ævin-
týri eftir H. C. Andersen. Skreytt
heilsíðu litmyndum.
SVANIBNIE eftir H. C. Ander-
sen. Skreytt á sama hát.
ÖSKUBUSKA og BAUÐHETTA
ævintýri allra barna.
Þessi guilfögru ævintýri em góð
jólagjöf fyrir börnin.
ur og áhorfendasvæði við
hann, og unnið hefur verið
að gerð nýrra búningsklefa
við sundlaugina, auk ýmissa
annarra framkvæmda. For-
keppni hefur þegar farið
fram í handknattleik og
knattspyrnu, og hafa eftir-
talin héraðssambönd og fé-
lög unnið sér rétt til þátt-
töku í úrslitakeppninni næsta
sumar:
1 handknattleik; U. 1. A„
H. S. Þ„ og U. M. F. N.
I knattspyrnu: U. M. F. K„
U. M. S. K„ U. M. S. S.
Forkeppni í körfuknattleik
fer fram í janúar.
Ungmennafélagar um land
allt hugsa gott til þessa
móts og undirbúa þátttöku
sína af krafti og búast má
við fleiri keppendum, en
dæmi eru til frá fyrri mót-
um.
Á Sauðárkróki verður boð-
ið upp á glæsilega og vel
skipulagða aðstöðu til íþrótta
keppninnar. Allt bendir þvi
til þess, að 14. landsmótið
á Sauðárkróki verði hin
glæsilegasta hátíð.