Einherji - 17.12.1972, Blaðsíða 3
JÖLABLAÐ 1972
EINHERJI
3
- Velpófenun yiir mönnnnum
Fram'hald af 1. síðu.
til alls. Eða auðæfi jarðneskra muna
framar en skortur þessa heims gæða,
þegar þar kemur, sem mestu varðar,
og mannssálin heldur fram til hins ei-
lífa. Eins og sagt er að vegir Guðs séu
órannsakanlegir, verður ferð mannsins
þessa dularfullu lífsins leið ekki sén til
hlítar. En von kristinnar lífsskoðunar
er sú, að öll eigum vér að verða eitt
í dýrð Guðs í upphæðum. Því er sú
boðunarviðleitni kirkjunnar, að allir
samieinist í andanum í eining helgandi
trúar, svo óumræðilega rík af samúð
og fagurri Guðsskynjun, að hún getur
ekki talað um velþóknun yfir aðeins
sumum mönnum á jólunum. Hátíðar-
efni þeirra er, að hið sanna ljós, sem
upplýsir hvern mann, kom í jarðnesk-
an heim til að vera öllum heiminum
ljós.
I þeirri veröld, sem hann vill lýsa
veginn til Guðs, eru fjölbrigði manns-
sálnanna svo mikil, að þess er aldrei
von, að allir sæi það í sömu leiftrum
né veginn eins varðaðan. En vér hljót-
um hér að öðlast þann þroska, að vér
skiljum, að einn finnur Guð við bjarta
fjallasýn í hreinleik og tign sköpunar-
innar, en annar við sakramenti kirkju-
legrar þjónustu. Og þá virðingu eigum
vér að sýna hinum mikla heimssmið,
sem er að hreinsa silfrið í mannssálim-
um, að vér fyrirlítum hvergi mannlega
tilraun, sem gerð er 1 þeirri veru að
lifa velþóknun Guðs. Vér komum til
hans með svo ólíkum hætti. En einmitt
þegar þar er komið, erum vér öll eitt.
Sjálfur sagði lausnari vor, að þann,
sem til hans kæmi, mundi hann alls
ekki reka burt. Þeir voru síðar á dög-
um mennirnir, sem tóku sér það
drottinvald, að segja oss, hvernig vér
ættum að koma til Guðs. Þeir, sem
í vorri samtíð og voru félagi vísa
oss veginn eftir þeirn mannasetningum,
hafa víst gleymt því, að verða eins og
böm — en á það eitt minnti hann oss,
lausnarinn ljúfi, og minnir oss á hverj-
um jólum. Barnslega hugarfarið hið
einfalda, sem er heilt og óskipt í Guðs
trausti og trú finnur, að velþóknun
Guðs yfir mönnunum er altæk, af því
að það horfir óvitandi framhjá öllum
ásteytingarsteinum og lifir hið
himneska á jörðu.
Einu sinni lá við, að einstæðings-
stúlka, sem alizt hafði upp við vinnu
og litla fræðslu fengi ekki fermingu af
því, áð hún kunni engin svör við
mannasetningum og trúarlærdómum
kirkjunnar. En hún varð til þess að
opna augu prestsins og safnaðarins,
sem höfðu undrazt fákunnandi hennar,
er hún leit upp saklausum barnsaugum
og sagði: „Þó að ég geti engu svarað
spurningum yðar um Jesúm Krist, þá
gæti ég samt dáið fyrir hann.“ í huga
hennar var frelsarinn það ljós, sem
engir jarðskuggar féllu á, ekki kenni-
setningar, ekki lærdómur, aðeins hami
einn, friður sálar í velþóknun Guðs. —
Hversu mjög eigum vér þvi ekki að
forðast það að hjúpa Drottinn dýrðar-
innar hinu margslungna ívafi manna-
setninganna og skyggja yfir skapandi
leyndardóm Guðs með þröngsýnum
fullyrðingum um takmarkaða velþókn-
un hans, eða hleypidómum um það, að
nálægð Guðs veru og fyrirgefandi elsku
sé ekki að finna, nema eftir fyrirmæl-
um manna um helgisiði. Slíkar venjur,
jafnt fyrir því, að þær kallast kirkju-
legar, eru naumast velþóknanlegar
Guði, nema þær séu sá vegur trúarinn-
ar, sem barn hans hefur fundið i leitar-
þrá hreins hjarta og alls liugar. Litla
stúlkan var fáfróð um alla lærdómana
um það, hvað mönnum hefur virzt um
Krist, — en, að vér værum eins og hún,
og gætum dáið fyrir hami. Þá gætum
vér einnig Iifað fyrir hann, óháð öllu,
nema fölskvalausri skynjun þess, að
dýrð í upphæðum og friður á jörðu er
velþóknun Guðs yfir mönnunum, sem
veitast mun um síðir.
Blessuð jól boði oss veru kærleika
hans í þessum bernskusporum á vegi
vorum itil hins eilífa.
Heilög jól færi oss nær því marki,
sem hann sýndi oss, heimsins ljós, að
er ætlun Guðs í lífi voru á jörðu, þegar
dýrð í upphæðum lýsir skammdegið
og ljómar svo inni vort, að vér finnum
frið trúarinnar og skynjum velþóknun
Guðs, sem vakir yfir oss, unz vér
verðum öll eitt í augliti hans.
Ágúst Sigurðsson, Mælifelli
ÁFENGIS- og TÖBAKSVERZLUN
RlKISINS
TILKYNNIR:
Kaupum tómar flöskur merktar ÁTVR í glerið.
Heilflöskur á kr. 10,00
Hálfflöskur á kr. 8,00
Móttaka í öllum útsölum vorum úti á landi.
Áfengis- og tóbaksverzlun
ríkisins.
Kaupfélag Skagfirðinga
Sauðárkróki
Frá GEFJUN:
Drallon sængur, 3 stærðir
Drallon koddar, 3 stærðir
Rúmteppi
Kaupfélag Skagfirðinga
Vefnaðarvörudeild
Leikföng
Jólakort
Myndavélar
Filmur
Skíði
Snjóþotur
Ferðaprímusar
Bakpokar
Svefnpokar
Vindsængur
Útvarpstæki
Plötuspilarar
Segulbönd
Segulbandsspólur
Ritföng
KAUPFELAG SKAGFIRÐINGA
Byggingavöriidei Id
SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 95-5200
Það fæst í
BYGGINGAVÖRUDEILDINNI
MÚLALUNDUR
óskar landsmönnum
Gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin á hðnum árum.
MÚLALUNDUR
Ármúla 34 — Reykjavík