Einherji


Einherji - 17.12.1972, Page 9

Einherji - 17.12.1972, Page 9
JÓLABLAÐ 1972 EINHERJI 9 Útgefandi: Kjördæmissamband Framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi vestra Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jóhann Þorvaldsson Blaðamaður: Guðmundur Halldórsson Skrifstofa og afgreiðsla: Sauðárkróki. — Sími 5375. — Pósthólf 32. Ársgjald kr. 150,00. Sigluijarðarprentsmiðja h. í. Bókafregn Á miðum og Mýri höí: Rögnvaldur S. Möller Þessa dagana er að koma í bókaiverzlanir ný skáldsaga, sú hin fyrsta eftir Rögnvald S. Möller kennara í Ólafs- firði, er sem kunnugir kann- ast við, að er sonur þeirra merkishjónanna Jónu og Ohristians Möllers, er bjuggu langan aldur á Siglufirði en eru nú bæði látin. Rögnvaldur er fæddur á Siglufirði árið 1915. Hann ólst upp að mestu 1 Skaga- firði og hefir unnið að fram- leiðslustörfum jafnt til sjáv- ar og sveita mestan hluta ævinnar. Hann er kennari að menntun og hefir verið kenn- ari undanfarin 11 ár. Þessi bók Rögnvaldar er skemmtilega sikrifuð — á góðu máli og iaf skilningi á lífi unga fólksins í dag. Það virðist vaka fyrir höf- undi að sýna sem gleggst ihvaða áhrif gotit uppeldi og heimilislíf hefir á unglinga og hve mikið og gott vega- nesti það er. Aðal söguhetjurnar, Sig- ríður og Þórarinn eru stað- föst og mikið dugnaðar- og efnisfóllk — og raunar allar sögupersónur, sem áhrif hafa, mestu heiðurs mann- eskjur. Þetta er ein af þeim fáu skáldsögum — íslenzkum, sem ekki otar fram illgirni og tvöfeldni, heldur leggur ihöfundur áherzlu á að sína manndóminn, tryggðina og ástina á hreinskilinn og opin- skáan hátt. Sjósóknarlýsing- ar eru mjög góðar og auð- séð að þar vantar ekki skilning höfundar á sjó- mannslófi fremur en öðrum mannlegum viðfangsefnum. Ég er viss um að þessi bók á eftir að veita ánægju ungum sem öldnum, er ánægju hafia af lestri góðra íslenzikra skáldsagna. Mig langar til að vekja athygli á þessari bók. Hún á 'það fylli- lega Skihð. Bókin er gefin út af bóka- forlagi Odds Björnssonar á Akureyri. Smekklega bóka- teikningu gerði Kristinn G. Jóhannsson, skólastjóri og er frágangur allur hinn vand aðasti frá hendi útgefanda. Björn Dúason Samvinnuverzlun Eins og áður er um getið opnaði Kaupfélag Eyfirð- inga útibú í Siglufirði í glæsilegri Kjörbúð 1. nóvember síðastliðinn. Siglfirðingar reynið viðskiptin. Góðar vörur, gott verð. Sverrir Sveinsson, rafveitustjóri: Skipulag raforkumála Á þessu ári hafa verið miklar umræður um skipu- lag raforkumála. I apríl lagði iðnaðarráðherra fram þings- állyktunartillögu um raforku- mál, sem eins og kunnugt er náði ekki afgreiðslu á síð- asta þingi. Á aðalfundi Sambands ísl. rafveitna, sem haldinn var á Akureyri 29-30 júní var skipulag raforkumála eitt aðalmál fundarins. f sumlar þann 16. júní, stóð Samband ungra fram- sóknarmanna fyrir opinni ráðstefnu á Sauðkróki um raforkumál og iðnþróun, og bauð sérstaklega ölum sveit- arstjórnarmönnum í þessu kjördæmi að sitja hana. Á fjórðungsþingi Norð- lendinga 4.-5. september var gerð eftirfarandi samþykkt um raforkumál. fram komu í erindi hansl voru settar fram í tillögu- formi og byggðar að veru- legu leiti á sjónarmiðum. sem fram komu hjá eigend- um raforkumannvirkja, en nefndin vann m. a. að gagna- söfnunum viðhorf þeirra svo og landshlutasamtaka sveitar félaga til framtíðarskipunar rafonkuiðnaðarins í landinu. Niðurstöður ráðstefnunnar ihafa verið kynntar á blaða- mannafundi af stjóm Sam- bands ísl. rafveitna í sam- ráði við formann og fram- kvæmjdastjóra Sambands ísl. sveitarfélaga.. Þar sem hér er um að ræða málefni, sem mjög vel eru viðráðanleg í þessu kjör- dæmi lán beinna afskipta ríkisins, þykir mér rétt að birta í Einherja þessar niðui' stöður í heild. 1. Éullnýtt verði nú þegar öll tiltæk raforka á Norður- landi og svæðið sameinað í eina Norðurlandsvirkjun eign íheimamjanna og ríkisins. 2. Hlutlaus könnun verði gerð á hagkvæmiustu lausn orkuþarfa Norðurlands með skammtíma og langtíma sjón armið í huga og þeir valkost- ir teknir, sem gefa ódýrasta orku til neytenda. 3. Norðurlandsvirkjun selji rafmagn á sama heild- söluverði til dreyfingaraðila. 4. Unnið verði að auknum áhrifum heimamanna á stjórn Rafmagnsveitna ríkis- ins. Inngangur 1. Markmið raforkuiðnað- arins eru að tryggja næga og semj ódýrastia raforiku af við- unandi gæðum til allra not- enda, og að orkubúskapur þjóðarinnar verði rekinn með hagkvæmni þjóðarheildar- innar fyrir augum. Viðræður skulu teknar upp milli eig- enda raforkufyrirtækja um sameiningu þeirra í stærri einingar, þar sem hagkvæmt er talið. Skal hún grundvall- ast á frjálsum samningum, framjlögum aðila og mati á gildi markaðarins. Samtök sveitarfélaga og iðnaðar- ráðuneytið beiti áhrifum sLi- um til að stuðla að framlagi málsins. samtengingu raforkuvera og orkuveitukerfa. Sam- tengingar komi til fram- kvæmda, þegar þær eru hagkvæmari en aðrir val- kostir til orkuöflunar eða tryggja betur öryggi. 4. Koma skal á fót sam- starfsnefnd landshlutafyr- irtækjanna varðandi orku- vinnslu og samrekstur. 5. Þar sem hagkvæmt telst, getur sama fyrirtæki ann- ast bæði raforkuvinnslu og dreifingu. 6. Stefna ber að sömu heild- sölugjaldskrá innan hvers landshluta. Raforkudreifing 1. Unnið skal að því að allar dreifiveitur verði eign sveitarfélaga eða sameign- arfélaga þeirra. 2. Stiefnt skal að sameiningu dreifiveitna í stærri ein- ingar, þar sem hagkvæmt þykir. Stærð slíkra fyrir- tækja er háð landfræði- legum og félagslegum mörkum, sem þurfa ekki að falla að mörkum orku- vinnslusvæða. 3. Þær dreifiveitur í strjál- býli, sem eru f járhagslega óhagkvæmar, fái óaftur- kræf stofnfjárframlög í Orkusjóði, sbr. 71. gr. gildandi orkulaga. Þær dreifiveitur, sem búa við sérstaklega hátt heildsöluverð raforku, fái verðjöfnunargreiðslur úr Orkusjóði til niðurgreiðslu á smásöluverði. 4. Koma skal á samræmdri Dagana 10.-12. ogt. s. 1. foeitti Samband ísl. rafveitna sér fyrir sérstakri ráðstefnu um skipulag raforkumlála. Sú ráðstefna var haldin í sam- vinnu við Samband ísl. sveitarfélaga sátu ráðstefn- una fulltrúar úr stjórn sam- bandsins ásamt framkvæmda stjóra og fulltrúar voru frá 2. Skipting landsins í svæði markast af aðstæðum á hverjum stað. Hugsanleg framtíðarskipan er skipting í eftirtalda landshluta: Norð- urland, Vesturland, Reykja- nes, Suðurland, Höfuðborgar svæðið, Vestfirði og Austur- land. smásölugjaldskrá (staðal- gjaldskrá) fyrir allar veit ur, þannig að raunveru- legur samanbm-ður fáist á orkuverði til notenda. Stjórn Sambands ísl. sveit- arfélaga hefur gert svofellda samþykkt um niðurstöður náðstefnunnar: landshlutasamtökum sveitar- félaganna. Gestir ráðstefn- unnar voru fulltrúar frá iðnaðarráðuneytinu og öllum þingflokkunum. Skráðir voru 78 þátttaikendur á ráðstefn- irnni. Á ráðstefnunni fluttu er- indi. Jakob Gíslason orkumálastj., Skipulag raforkumála. Bjami Einarsson, bæjarstj., Skipulag raforkumála og sveitarfélögin. Bjami Bragi Jónsson hag- fræðingur, skýrði frá niður- stöðum ráðstefnu, sem starfs menn Rafmlagnsveitna ríkis- ins héldu um sama efni. Haukur Pálmason yfirverk- fræðingur, Skipulag raforku- má'la. Erindi Hauks var byggt upp á áhti nefndar, sem hef- ur starfað á vegum Sam- ibands ísl. rafveitna síðan í maí. Þær hugmyndir sem 3. Tekjur Orkusjóðs skulu aufcnar umfram það, er um getur í 68. gr. orkulaga, með almennumj orkuskatti, er fcomi í stað núverandi verð- jöfnunargjalds og leggjist á síðasta sölustig orkunnar. Kemur til álita, að framlag til raforkutoerfisins verði bundið við skattgjald af raforkusölunni einni. Raforkuvinnsla 1. Meginstefnan sé, að orku- vinnslufyrirtæki séu sam- eign sveitarfélaga og rík- is, eða í eigu sveitarfélaga eða sameignarfél. þeirra. 2. Tryggt skal, að meiri hluti í stjórn orkuvinnslu- fyrirtækja sé búsettur á orkuveitusvæði viðkom- andi fyrirtækis. 3. Við val á mannvirkjagerð til raforkuvinnslu og að- flutnings ber að láta hag- kvæmni- og öryggissjón- armið ráða. Stefna ber að „Stjórn Sambands ísl. sveit- arfélaga lýsir stuðningi sín- um við þau sjónarmið um skipulag rafoirkumála, er samjþykkt voru á fundi stjómar SÍR 31. okt. s. 1., og eru í samræmi við megin- niðurstöður ráðstefnu SÍR 10.—12. okt. s. 1. um fram- angreind efni. Stjórn Samibands ísl. sveit- arfélaga tekur þó fram, að hún stefnir að því að fella framangreindar niðurstöður inn í tillögur sínar um verka- Skiptingu ríkis og sveitarfé- laga, sem nú eru í endur- sfcoðun á vegum sambands- ins, og áskilur sér í því sam- bandi rétt til breytinga á orðalagi og breytinga á ein- stökum framtovæmdaatrið- um, sem igert er ráð fyrir í niðurstöðum nefndarinnar. Slíkt mun þó efcki hagga framangreindum meginniður- stöðum.

x

Einherji

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.