Einherji


Einherji - 17.12.1972, Blaðsíða 16

Einherji - 17.12.1972, Blaðsíða 16
16 EINHERJI JÓLABLAÐ 1972 Gódar gjafir Lionsklúbbur Sauðárkróks færir Sjúkrahúsi Sauðárkróks góðar gjafir Jón Karlsson form. Lionsklúbbs Sauðárkróks, (til hægri) afhendir Friðrik J. Friðrikssyni héraðslækni, formanni Sjúkrahússtjórnar hjartagæzlutækið. Þann 1. nóvember sl. af- j hen'ti Jón Karlsson formaður Lionsklúbbsins, Sjúkrahús-1 inu vandað hjartagæzlutæki að gjöf. Tækið er keypt frá Bandaríkjunum og kostaði 250 þús. krónur. Tollar og aðflutningsgja'ld fengust eftirgefin. Friðrik J. Friðriksson héraðslæknir, varaformaður Sjúkrahússtjórnar þakkaði klúbbnum gjöfina og stuðn- ing hans við eflingu heil- brigðismiála og heilsugæzlu í ihéraði. Sjúkrahúslæknirinn sýndi tækið og útskýrði notkun þess fyrir gestum og fundarmönnum. Lionsklúbbur Sauðárkróks hefir á undanförnum árum gefið Sjúkrahúsi Skagfirð- inga mjög góðar gjafir. Hef- ir klúbburinn gefið Sjúkra- húsinu ýmis rannsóknar- tæki, svo sem efnaskipta- tæki, sjónprófunartæki, Hann gaf einnig nýverið tæki til endurhæfingar. Allir vilja berjast gegn mengun, — en hvers vegna tökum við ekki höndum saman um að róðast gegn alvarlegasta meng- unarvaldinum hér á landi, sígarettunni. Þeir, sem hafa enn ómenguð lungu, ættu aldrei að kyíeikja í fyrstu sígaréttunni, og hinir, sem reykja, ættu að hætta dður en þeir verða meng- uninni að bróð. öllum ætti að vera Ijóst, að s.ígarettureykingar geta meðal annars valdið hjartasjúkdómum og krabbameini. Göðar vörur - gott verð Allar tegundir matvöru á sama stað Heimilistæki, búsáhöld, ýmiskonar vefnaðarvörur, leikföng Dragið ekki innkaup til síðustu daganna fyrir jól. Gjörið svo vel. Reynið viðskiptin Útibú Kaupfélags Eyfirðinga, Siglufirði KJÖRBÚÐ Suðurgötu 4 ÚTIBÚ Hvanneyrarbraut 42 Búnaðarfélag Islands sendir landsmönnum öllum beztu óskir um GLEÐILEG JÖL Gæfuríkt komandi ár Gjafaverzlun Steindórs Marteinssonar Aðalgötu 4 — Sauðárkróki Gjafaverzlunin býður yður gott og vandað úrval af fjöibreyttri gjafavöru: ÚR, KLUKKUR og SKARTGRIPI úr gulli og silfri Hef allt í íslenzka þjóðbúningiim. Gylli, hreinsa og geri við skartgripi úr gulli og silfri. Steindór Marteinsson, gullsmiður.

x

Einherji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Einherji
https://timarit.is/publication/788

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.