Freyr

Volume

Freyr - 01.08.1940, Page 3

Freyr - 01.08.1940, Page 3
[ ] ] \fi MflNfi-ÐRR BLfi-Ð UM LBNDBÚNR-Ð Nr. 8 Reykjavík, ágúst 1940 XXXV. árg. Sigurður Sigurðsson fyrv. búnaðarmálastjóri 8. ágúst 1871 - 1. júlí 1940 Sem ungur maður var Sigurður Sigurðs- son oftast kenndur við œskustöðvar sínar og nefndur Sigurður frá Draflastöðum. Nú orðið eru það ekki nema þeir, sem honum voru löngum kunnugir, sem vita deili á þvi nafni. Síðustu tvo áratugina þekkti hver bóndi um land allt Sigurð og nefndi eftir því starfi, er hann þá vann lengstum. — Sig- urður búnaðarmálastjóri, var kunnur á hverju býli um land allt og viðast meira en af afspurn. Um miðbik œfinnar og léttasta skeið, var Sigurður nefndur tveim kenningar- nöfnum á vixl. í Skagafirði og víða um land: Sigurður skólastjóri, en á Akureyri og i Eyjafirði: Sigurður í Gróðrarstöðinni. Þótt þessar skýringar þurfi ekki til þess að bændalýður landsins minnist Sigurðar Sigurðssonar, og þótt viðurnöfnin kunni að geymast mislengi, held ég að nafnið Sigurður í Gróðrarstöðinni feðmi bezt um œfi Sigurðar og störf. Yfir því nafni mun heiðast í hugum þeirra, er bezt þekktu Sigurð. Allur var starfsferill hans að vinna með gróðri og fyrir gróður landsins, bænda- stéttarinnar, landbúnaðarins. Þá gróðrar- sögu þarf ekki að segja né rekja í FREY. Stofnun Rœktunarfélags Norðurlands 1903, forstaða þess og stofnun og rekstur Gróðr- arstöðvar þess á Akureyri, er að öllu öðru ó- rýrðu, merkilegasti þátturinn í starfssögu Sigurðar. Um leið er sá þáttur táknrœnn um vilja hans og vonir og trú. Allt starf hans var. gróðrarstarf. Hann vildi bœta landbúnaðinn og efla. í því var hann óðfús

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.