Freyr

Volume

Freyr - 01.08.1940, Page 4

Freyr - 01.08.1940, Page 4
114 FREYR Hólar í Hjaltadal Af byggingum sem sjást á myndinni eru leikfimishúsið og skólahúsið til vinstri, og fjós og hlaða til hægri handar við kirkjuna, byggt á skólastjóraárum Sigurðar Sigurðssonar. og sást ekki fyrir, jafnvel svo að okkur sam- verkamönnum hans fannst stundum nokk- uð skorta á að hann greindi rétt leiðir og úrrœði. Fjörið og áhuginn var. óþrjótandi, og sjálfum sér hlífði hann aldrei, að hverju sem stefndi. Þessvegna átti hann allstaðar vini einnig meðal þeirra, sem ekki áttu samleið með honum eða jafnvel greindi á við hann um stefnur og mið i búnaðar- málum. Allir fundu og skildu hve fram- faravilji hans var heill og einlœgur, að efla þá búsœld og búmenningu er gerir bœndum fœrt að ganga glöðum og reifum „að göfgandi störfum um byggð og ból.“ Þessvegna verður Sigurðar lengi minnst um sveitir landsins. Sigurður Sigurðsson var fæddur að Þúfu á Flateyjardalsheiði, 8. ágúst 1871, en ólst upp á Draflastöðum í Fnjóskadal með for- eldrum sínum Sigurði bónda Jónssyni og Helgu Sigurðardóttur. Hann stundaði nám í búnaðarskólanum á Stend í Noregi 1896—98 og síðar í Bún- aðarháskólanum í Kaupmannahöfn og lauk prófi þar 1902. Sama ár tók Sigurður við stjórn Bændaskólans á Hólum og var skólastjóri þar til 1919, er hann tók við for- ráðum Búnaðarfélags íslands, en því starfi gegndi hann, sem formaður og síðar sem búnaðarmálastjóri til vorsins 1935. Sam- hliða skólastjórastarfinu á Hólum var Sig- urður framkvæmdarstjóri Ræktunarfélags Norðurlands frá stofnun þess 1903 og til 1911 og stofnaði og starfrækti tilrauna- stöð þess — Gróðrarstöðina — á Akureyri á þeim árum. Árið 1899 kvæntist Sigurður Þóru Sigurð- ardóttur, ættaðri úr Fnjóskadal. Þau eign- uðust 5 börn og eru fjögur á lífi. Þóra andaðist 1938.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.