Freyr

Volume

Freyr - 01.08.1940, Page 13

Freyr - 01.08.1940, Page 13
FREYR 123 nokkrum framkvæmdum í þeim efnum. Ég álít ástandið alls ekki svo ískyggilegt að réttmætt sé að hverfa að slíkri neyðar- ráðstöfun, að ætla sér að útrýma mæði- veikinni með niðurskurði. Slíkt myndi líka víða mæta hinni hörðustu mótspyrnu. Eitt, sem ber að athuga í sambandi við allar bollaleggingar um niðurskurð, er að það fé, sem lifir enn á mæðiveikisvæðinu gefur svo ótrúlega mikinn arð, að enginn hefði trúað slíku fyrir nokkrum árum. Það er ekki einungis undarlegt, að dilkar eru nú orðið vænni en nokkru sinni fyrr, held- ur er undravert, hve vænir þeir eru, þegar tillit er tekið til þess, að nú láta flestir bændur á mæðiveikisvæðinu meiri hlut- ann af gimbralömbum sínum fá og auk þess er mun meira tvílembt en venjulega var áður en fénu fækkaði. Þetta hvort- tveggja orsakar, að hlutfallslega miklu meira af sláturdilkum bænda á mæðiveiki- svæðinu eru tvílembingar og lambgimbrar- lömb en nokkru sinni fyrr. Þrátt fyrir það er meðal kroppþungi dilkanna hærri en áður hefir þekkzt. Það er ekki unnt að fullyrða hverjar séu allar orsakir til þessa. Betri vetrarfóðrun á óefað mikinn þátt í hinum auknu afurð- um eftir hverja kind. Einnig mun fækkun fjár í högum vor og sumar líka eiga drjúg- an þátt í þessu a. m. k. sumstaðar. En hin mjög svo aukna frjóvsemi fjárins er næst- um því óskiljanleg. Hjá mörgum bændum á mæðiveikisvæð- inu er helmingur ánna með tveimur lömb- um og hjá sumum meira en helmingur. Auk þess kemur nú æði víða fyrir að lamb- gimbrar séu tvílembdar. Slíkt voru eins- dæmi áður. Það mun vera hæpinn gróði að fá lambgimbrar tvílembdar, en þrátt fyrir Það ber það vott um óvenjulega frjósemi. Góð fóðrun hlýtur að valda mestu um hina auknu frjósemi fjárins, annars er það ó- skiljanlegt. Reynslan hefir kennt okkur, að það fæst mjög mikill arður af sauðfénu á mæði- veikisvæðinu, þrátt fyrir mikil vanhöld, og hve fátt það er orðið. Ættu bændur um land allt að láta það sér að kenningu verða, og eiga ekki fleiri skepnur en þeir geta fóðrað svo vel að þær gefi fullan arð. Meðan útlitið með sauðfjárræktina hjá bændum á mæðiveikisvæðinu versnar ekki frá því sem nú er, álít ég að ekki muni vera rétt að hugsa til fjárskipta, nema ef til vill á nokkrum jarðarsvæðum, þar sem hægt væri að hreinsa til án þess að gera aðalvarðlínur lengri eða erfiðari til vörslu. Hugsanlegt væri að reyna að útrýma allri mæðiveiki af Vestfjarðakjálkanum og færa aðalvarðlínu þar að Gilsfirði og Bitru- firði. Eins gæti komið til mála að reyna fjárskipti á svæðinu milli Blöndu og Hér- aðsvatna norðan Vatnsskarðsgirðingar. Þarf samt að athuga það rækilega áður en ráðizt væri í framkvæmdir. Það sem mér ofbýður mest, þegar rætt er um niðurskurð, er að hugsa til þess að ráðast á þann hluta fjárins, sem bezt stendur sig gegn plágunni, því illa væru bændur staddir, ef það yrði gert, en samt tækist ekki að útrýma veikinni, en svo illa gæti farið. En hvað sem framundan kann að vera, þá verða þeir bændur, sem lengst hafa búið við mæðiveikina og misst hafa margt af fé sínu, að bjóða plágunni byrginn og reyna að fjölga fénu aftur. Á komandi hausti ætti alls ekki að slátra nokkru gimbrarlambi undan heilbrigðum foreldr- um á þeim svæðum, þar sem mæðiveikin hefir verið 2 ár eða lengur. Ef einhverjir eiga þá fleiri gimbrarlömb, en þeir sjálfir þurfa að setja á, eða hafa fóður handa, eiga þeir að selja þau þeim, sem fæst eiga eða til bænda, sem eru að fá veikina í fé sitt. En afgamlar ær og meira eða minna

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.