Einherji - 02.01.2002, Side 1
Söluumboð tyrir Suzuki
á Horðurlandi uestra, huammstanga
S: 451 2230 6 854 0969 • F: 451 2890
• Jóhannes Erlendsson
SYnillGFIRBILRR H STnÐllUlll
Framboðsmdl í Húnaþingi vestra
Sá hópur er skipar efstn sœti listans í Húnaþingi vestra frá eitt til sjö.
ífremri röð: Elín R. Líndal, Karl Eggertsson og Sigtryggnr Sigurvaldason, í aftari röð: Þorbjöm Gíslason,
Guðmundur Kristjánsson, Dóra Valdimarsdóttir og Bára Garðarsdóttir
Undirbúningur fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingarnar nú í vor eru komin á nokkurt
skrið hjá framsóknarfélögunum í
kjördæminu.
Hjá Framsóknarfélaginu í Húnaþingi
vestra var ákveðið í desember sl,
uppröðun sjö efstu manna á lista flokksins
til sveitarstjórnarkosninganna í vor.
Hefur undirbúningur staðið allt frá
aðalfundi sem haldinn var í október. Var
samþykkt að fara í uppröðun á lista að
undangenginni skoðanakönnun. Var
nýkjörinni stjórn falið að annast verkið.
Framkvæmd skoðanakönnunarinnar
tókst í alla staði vel, en um helmingur
félagsmanna tóku þátt í henni og var
niðurstaðan sú að 43 nöfn voru nefnd í
könnuninni. í framhaldi af skoðanakönn-
uninni gerði stjórnin tillögu til félagsfund-
ar um sjö efstu menn listans sent var
samþykkt samhljóða. Mun stjórnin koma
með tillögu að áttunda til fjórtánda sæti
listans innan tíðar.
Um scuneiningu sveitarfélagu
Miklar breytingar hafa átt sér stað á fjölda sveitarfélaga í landinu s.l. áratug. Síðan
1990 hefur sveitarfélögum í landinu fækkað uni ríflega eitthundrað þar af hefur þeim á
síðustu fimm árum eða frá 1996 fækkað um sextíu. Norðurland vestra er enginn eftir-
bátur hvað þessa þróun snertir. Árið 1996 voru sveitarfélögin í Norðurlandskjördæmi
vestra 30 talsins, en verða í vor að loknum kosningum 12 talsins. Þar á stærstan þátt
sameining sveitarfélaga í Skagafirði og Húnaþingi vestra. Eins og kunnugt er
sameinuðust Blönduós og Engihlíðarhreppur síðastliðinn vetur að undangengnum
kosningum og í lok síðasta árs var ákveðið að Vindhælishreppur skildi sameinaður
Skagahreppi í samræmi við tillögur nefndar sem skipuð var af félagsmálaráðherra og
að fenginni umsögn sveitarstjórna viðkomandi sveitarfélaga. Rannsóknarstofnun
Háskólans á Akureyri framkvæmdi skoðanakönnun meðal íbúa í Vindhælis og
Skagahreppi og i báðum hreppunum og kom fram eindregin vilji íbúa fyrir sameiningu
þeirra. Mun sameiningin taka gildi að loknurn sveitarstjórnarkosningum þann 25. maí
2002 er kosið verður til nýrra sveitarstjórna. Auk þess verður kosið um nýtt nafn á
sveitarfélögin samhliða sveitarstjórnarkosningunum nú í vor.
• StoCar • lyftarar
• PCötuGorð
• BorðvaQnar
• TaetjjaCoiífa
• Vinnaíjtírfar
• HaadtriCCur
• Lagcrvagnar
• HjóCaGánaður
• Scrsníði oq fCcíra
LÉTTITÆKNI EHF
Efstubraut 2 - 540 Blönduósi
Sími: 452 4442 - 853 4442 - Fax: 452 4330
E-mail: jjj@isholf.is - Veffang: isholf.is/lettitaekni