Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1944, Side 7

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.05.1944, Side 7
TIMARIT V. F. I. 1 !) 4 4 3 inni lekur holan að gul)ba þykkri leðjn, en bráð- lega hreinsar hún sig og þeytir upp úr sér aur, vatni og gufu með miklum gný. Að lokum stendur gufu- strókurinn stöðugur upp úr holunni upp í á að gizka 40 metra hæð - og með svo miklu afli, að sterkur karlmaður lieldur ekki kústskafti inni í stróknum fyrir þrýstingnum. Er eg frétti um þessa borholu stakk eg upp á því við Steinþór Sigurðsson og Pálma Hannesson rekt- or, að við færum austur, til þess að athuga þessa mestu borun, sem lil þessa liafði verið framkvæmd. og fórum við Pálmi skörnmu síðar austur. Þar sem engin mælitæki voru í sambandi við uppstreymið úr þessari liolu varð gufumagn hennar og þrýst- ingur ekki mældur, en eg áællaði gufuna ca. 5 tonn á klst. Jafnframt rann frá holunni sjóðandi vatn er mældist vera 1 sekl. Auk þessa vatns Irarst töluvert vatn upp í loftið með gufustróknum, er varð ekki mælt. Gufa og valn úr holu þessari er þegar að nokkru leyti notað til upphitunar gróður- og ibúðarhúsa. Mælingar á liolu þessari munu ekki, Gufuborunin að Reykjakoli. Ljosm.: Pálmi Hanuesson, þegar þella er rilað, iiafa verið framkvæmdar, og hefir þetta dregizt lengur en æskilegt var. Skömmu síðar en þetta var, ritaði eg grein í Visi um hveravirkjanir og livalli mjög til þess, að menn sameinuðust nú um að gera gangskör að því að rannsaka virkjunarmöguleika gufuhvera. Sendi eg grein þessa öllum bæjarfulllrúunum þ. 18. febrú- ar ásamt svohljóðandi bréfi: „Hjálagt leyfi eg mér að senda vður Vísi frá 11. febrúar s. 1., en i honum birtist grein um virkjun gufuhvera til liita og raf- magnsframleiðslu. Þætti mér vænt, ef þér vilduð kvnna vður innihald greinar þessarar rækilega og laka til athugunar,hvort ekki væri rétt,að Reykjavikurbær gæfi því máli, sem þar um ræðir meiri gaum en verið hefir lil þessa og láli hefja þær athuganir, sem síðar kunna að verða mikilvægur undirbúning- ur gagnlegra virkjana.“ Skömmu siðar var bréf þetta lagt fram i bæjarráði og var samþykkt að beina þeirri áskorun til þingm. Reykjavikur, að þeir beittu sér fyrir því á Alþingi, að liafnar yrðu rannsóknir á virkjunarmöguleikum gufuhvera i Ilengli. Þing- mennirnir tóku nú málið upp, og gekk það við- stöðulaust gegn um þingið, og var í marzbyrjun samþvkkt svohljóðandi þingsályktunartillaga: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta, í samvinnu við Reykjavíkurkaupstað, hið allra fyrsta fram fara rannsókn á virkjun gufuhvera í Iiengl- inum til hita- og rafmagnsframleiðslu. Skal semja við Reykjavíkurkaupstað um skiptingu kostnaðar við rannsóknir þessar milli ríkissjóðs og bæjarsjóðs Reykjavikur, og heimilast að greiða nauðsynlegt fé i þessu skyni úr ríkissjóði.“ Samliliða því, að þetla gerðist, átti rannsóknar- ráð rikisins tal við okkur Benedikt Gröndal, verk- fræðing, og óskaði eftir því, að við sendum sam- eiginlega álitsgjörð um það, hvernig liaga bæri nánari rannsóknum og framkvæmdum í sambandi við gufuborauir og virlcjanir evstra. Mun ráðið, að svo stöddu ekki liafa óskað að taka afstöðu til bréflegs til- boðs, er Vélsmiðjan Jötunn h.f. liafði gert ráðinu þ. 18. febrúar um smiði jarðbors til borunar 12” víðra hola og smíði aflvélar (gufutúrbinu) fyrir hina fyrstu virkjun. lillögur okkar Gröndals, dags. 2. marz þ á. gengu nú lil rannsóknarráðsins, en þaðan til ríkisstjórnar- innar og liggja þar enn og bíða úrlausnar. Þess má e. t. v. geta hér, að árið 1936 mælti skipu- lagsnefnd alvinnumála með þvi við fjárveitinga- nefnd, að sett yrði sérstök upphæð á fjárlög til gufu- borana og jarðhitarannsókna. Hafði nefndin í hönd- um frá mér ýmsar upplýsingar og einnig tilboð i mjög fullkominn jarðbor, er gat borað allt að þvi 50 cm víðar holur, 400 m djúpar. Bor þessi var sams- konar og horar þeir, er notaðir voru i Ítalíu. Enginn skriður komst þó á málið að þvi sinni.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.