Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2004, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004
Fréttir DV
unarbanns
Lögreglan í Reykjavík
hefur krafist nálgunar-
banns yfir geðsjúkum
manni sem gekk í skrokk á
manni í síðustu viku. Fórn-
arlambið kærði árásina til
lögreglu en hann mun hafa
slasast nokkuð við árásina.
Fréttablaðið greindi frá því
um helgina að árás-
armanninum hafi verið gert
að flytja úr húsnæði sínu
enda mun hann áður hafa
ráðist á fólk og unnið
skemmdarverk á eigum
þess. Fféraðsdómur Reykja-
víkur tekur afstöðu til kröf-
unnar í næstu viku en með
nálgunarbanni er átt við að
viðkomandi megi ekki
korna í 30 metra radíus frá
þeim stað sem bannið tek-
ur til.
Skilorð fyrir
kynferðisbrot
Héraðsdómur Norður-
lands dæmdi í gær tæplega
þrítugan Akureyring í fimm
mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir kynferðisbrot.
Maðurinn var fundinn sek-
ur um að hafa áreitt tvær
ungar stúlkur með því að
káfa á þeim innanklæða í
þrjú skipti þegar stúlkurnar
voru gestkomandi á heimili
hans. Hann var hins vegar
sýknaður fyrir að hafa haft í
vörslu sinni að minnsta
kosti fimmtíu myndir sem
sýna börn á klámfenginn
hátt. Myndirnar voru gerð-
ar upptækar. Manninum er
gert að greiða hvorri stúlku
150 þúsund krónur í miska-
bætur. Dómurinn er skil-
orðsbundinn til þriggja ára.
15 ára stúlka
braust inn
ívínbúð og
apótek
15 ára stúlka á Selfossi
braust inn í bæði Vínbúð
ÁTVR á staðnum og Árnes-
apótek í fyrrinótt. Að sögn
lögreglunnar á Selfossi braut
stúlkan fyrst rúðu á Vínbúð-
inni og tókst að teygja sig
eftir nokkrum bjórum. Síðan
lá leið hennar að Árnesapó-
teki þar sem hún braut
einnig rúðu á húsinu og
reyndi að komast þar inn.
Lögreglan segir að við
rúðubrotið í Árnesapóteki
hafi þjófavarnarkerfi húss-
ins farið í gang. Brá lögregl-
an skjótt við og náði að
handtaka stúlkuna á vett-
vangi. Hún mun hafa verið
undir einhverjum áfengis-
áhrifum. Hún var vistuð
á lögreglustöðinni um nótt-
ina og við yfirheyrslur
morguninn eftir játaði hún
bæði brotin. Málið telst
upplýst.
f framhaldi af játning-
unni ákvað stúlkan að fara í
meðferð á meðferðarstöð
fyrir unglinga þar sem hún
dvelur nú.
Flassari gengur laus í Fossvogi. Lögreglan rannsakar málið. íbúar óttaslegnir og
presturinn, séra Pálmi, fundar og biður fólk að leyfa lögreglu að vinna sitt verk.
Hann telur þó umræðu til bóta en flassarinn gengur undir viðurnefninu
Flautukarlinn.
„Það er mjög alvarlegur hlutur þegar saklaus
börn eru hrelld með þessum hætti og aðeins
sjúkt fólk sem lætur svona," segir Pálmi Matthí-
asson, sóknarprestur í Bústaðakirkju, en foreldr-
ar í nágrenni Fossvogsins hafa miklar áhyggjur af
flassara sem fyrir um tíu dögum hrelldi tólf ára
gamla stúlku í Fossvoginum. Stúlkan hefur
tvisvar gefið skýrslu hjá lögreglunni í Kópavogi
en ekki hefur tekist að hafa uppi á manninum.
Flautukarlinn
Faðir stúlkunnar sem um ræðir vildi ekki
koma fram undir nafni vegna öryggis dóttur
sinnar. Hún hefur ítrekað lent í flassaranum og
segir pabbi hennar að krakkamir í liverfmu kalli
manninn Flautukarlinn. Lýsingar krakkanna eru
á þann veg að hann komi sér fyrir í hæfilegri fjar-
lægð og flauti svo hátt og skýrt. Þegar þau snúa
sér við girðir hann niður um sig og þau hlaupa
hrelld í burtu.
Hanna S. Hjartardóttir, skólastjóri í Snæ-
landsskóla, segir að á síðasta ári hafi foreldrar
hringt í skólann og kvartað undan manni sem
gengi laus í Fossvog-
i og hrelldi börn. „Ég ímynda mér að trjágróður-
inn og runnarnir skýli þessum mönnum svo þeir
geti athafnað sig,“ segir Hanna og segir að á dög-
unum hafi dularfullur maður maður gengið um
skólalóðina og gefið sig á tal við börnin. „Við höf-
um vakandi auga með slíku athæfi og höfum
samband við lögreglu," segir Hanna.
Ætla að ná kauða
Á miðvikudaginn kl. 17:00 í næstu viku verður
haldinn fundur samtaka um Betra líf í Bústaða-
hverfi. Fundurinn er haldinn í kirkjunni og séra
Pálmi Matthíasson staðfestir að þar verður
Flautukarlinn til umræðu.
Séra Pálmi Matthíasson „Tildæmis tóku foreldrar sig saman fyrir nokkrum árum og grisjuðu stórt svæði ídainum tilað
auka öryggi barna sinna."
„Þetta félag er einskonar grasrótarsamtök
þeirra sem bera velferð barnanna í hverfmu fyrir
brjósti," segir Pálmi. „Við höfum lengi átt í við-
ræðum við borgina um að svæðin í Fossvoginum
verði opnuð og gerð öruggari. Til dæmis tóku
foreldrar sig saman fyrir nokkrum árurn og
grisjuðu stórt svæði í dalnum til að auka öryggi
bárna sinna."
Pálmi segir að þótt foreldrar og aðrir ræði
þessi mál megi ekki gleyma því að þetta er fyrst
og fremst lögreglumál
Friðrik Smári Björgvinsson, lögreglustjóri í
Kópavogi, segir að verið sé að rannsaka þetta
mál: „Við reynum náttúrulega að hafa uppi á
kauða."
simon@dv.is
Doktor hefur hugsjónabaráttu
Vá! Svarthöfði er fullur aðdáunar.
Hann myndi taka ofan hatt sinn fyrir
dr. Jóhanni M. Haukssyni stjórn-
málafræðingi ef ekki fylgdi sá bögg-
ull skammrifi að þá myndi gríman
fylgja með, og grímuna lætur Svart-
höfði aldrei falla nema rétt yfir
blánóttina, þegar kona Svarthöfða,
Svarthöfða, hnippir í hann.
Og hvað hefur dr. Jóhann M.
Hauksson afrekað sem vekur svo
mikla aðdáun Svarthöfða? Jú, að því
er sagði í Mogganum í gær hefur dr.
Jóhann kært til siðanefndar Háskóla
Islands „það prinsipp að körlum
skuli mismunað vegna kynferðis síns
við stofnunina". Sú mikla mismun-
un sent dr. Jóhann hefur uppgötvað
er „Kvennaslóðir", kynningarsíða á
vef Háskólans þar sem, segir Mogg-
inn, „er að finna upplýsingar um
konur sem hafa stundað nám við HÍ
og er ætlað að færa konur nær fjöl-
miðlum og viðskiptalífinu þegar leit-
að er að sérfræðingum".
Nafn dr. Jóhanns M. Haukssonar
bendir eindregið til þess að hann sé
karlmaður og Mogginn hefur eftir
honum að „sérstakur gagnagrunnur
sem eingöngu þjóni konum" sé f
mótsögn við siðareglur HI þar sem
segi að ekki skuli mismuna fólki eftir
kynferði.
Nú veit Svarthöfði ekki hvort dr.
Jóhann hefur gert tilraun til að fá
nafnið sitt á „Kvennaslóðir" en feng-
ið neitun, eða hvort eingöngu er um
að ræða hugsjónastarf og mannrétt-
indabaráttu doktorsins. En Svart-
höfða þykir verulega aðdáunarvert
þegar hámenntaðir stjórnmálafræð-
ingar líta upp úr fræðiritunum og
ganga óhikað á hólm við óréttlæti
heimsins með þessum hætti. Ein-
hver kynni kannski að segja að ef dr.
Jóhann hefði leitað vel, þá gæti hann
kannski hafa fundið einhvers staðar
- jafnvel í okkar þjóðfélagi - meira
óréttlæti og meiri mismunun (jafn-
vel á grundvelli kynja) heldur en það
að haldið sé úti vef með nöfnum
nokkurra knárra kvenna, en mennt-
un og skarpskyggni doktorsins hefur
sem betur fer verið vel vakandi og
sýnt honum frarn á að þessa ósvinnu
yrði þegar í stað að leiðrétta.
Húrra fyrir mannréttindafrömuð-
inum dr. Jóhanni, segir Svarthöfði,
og vonar að hinn hugdjarfi doktor
ntuni ekki láta hugfallast þótt tals-
rnenn ójafnréttis og mismununar
muni ráðast að honum með hæðni
og spotti fyrir þessa óeigingjörnu
hugsjónabaráttu sem óefað mun
gagnast öllu mannkyni. Og Svart-
höfði þakkar sínum sæla að doktor-
inn skuli ekki hafa látið önnur mál,
sem við fyrstu sýn kynnu að virðast
stærri og merkilegri, blinda sér sýn
og hindra sig í að ráðast að rótum
þessa rnikla misréttis.
Kona Svarthöfða, Svarthöfða, er
alveg sammála.
Svarthöfði