Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2004, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004
Fréttir DV
Tveirsukku-
tveirflutu
Björgunarsveitin Strönd
á Skagaströnd stóð í stór-
ræðum í höfninni þar í gær
við að bjarga tveimur bát-
um frá því að sökkva í
óveðrinu. í fyrrinótt sukku
tveir bátar í höfninni.
Björgunarsveitin útveg-
aði sér öflugar dælur og
tókst að bjarga bátunum,
sem eru um átta tonn að
stærð, frá því að sökkva.
Gífurlegt hvassviðri var all-
an daginn, raunar svo
hvasst að vindmælir bæjar-
ins sló út. Er talið að vind-
hraðinn hafi farið í 40 m/s í
verstu hviðunum en það er
meira en 12 vindstig.
Brjálað veður
„Það hefur verið alveg
brjálað veður hér og allar að-
stæður hinar erfiðustu,"
sagði Ari Þórsson björgunar-
sveitarmaður um kvöldmat-
arleytið í gær. „Fyrir utan
björgunaraðgerðina í höfn-
inni höfum við talsvert sinnt
hjálparbeiðnum frá fólki
sem óskað hefur eftir því að
vera mokað út úr húsum
sínum. Við reiknum með að
vera allir á vaktinni hér fram
eftirkvöldi."
Kjósendur
ekkifífl?
„Þú færð mig nú ekki til að
kalla kjósendur fífl. Þeir geta
hins vegar oft verið ansi
ístöðulausir og minni þeirra
ákaflega slappt. En lýðræðið
krefst þess nú kannski ekki að
fólk framvísi vottorði um
ákveðna greind."
Heimir Már Pétursson,
upplýsinga- og kynningarfulltrúi
Flugmálastjórnar.
Hann segir / Hún segir
„Ég er gersamlega sammála
Ólafi Þ. Harðarsyni þar um. Ég
held að greindarvísitala kjós-
enda sé í góðu lagi og ég er
mjög hrifin af kjósendum sem
hópi."
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor
við Hl, hélt því fram á mál-
þingi Samfylkingarinnar á
dögunum að kjósendur væru
ekki fífl, raunar oft klókari en
stjórnmálamenn.
Arnbjörg Sveinsdóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins:.
Daníel og vinkona hans segjast hafa vaknað upp af værum blundi á Kársnesbraut-
inni í Kópavogi síðdegis í gær þegar þrír fílefldir menn stóðu yfir þeim með hafna-
boltakylfur og sveðjur. Létu mennirnir höggin dynja á honum og vinkonu hans
sem fékk taugaáfall, enda þvinguð út í hraðbanka að abrsmíðum loknum. Allt
reyndist þetta þó uppspuni þegar lögreglan gekk á þau.
Daníel og vin-
kona hans fyrir
utan lögreglu-
stöðina í Kópa-
vogi í gær.
Sagði árásar-
mennina fól og
likti þeim við peð
á taflborði. Allt
var það þó lygi.
Djöfulleg árás
reyndist tám lygi
Ein stærsta frétt gærdagsins var að þrír fflefldir
menn hefðu ruðst inn á heimili í Kópavogi,
vopnaðir sveðjum og hafnaboltakylfum.
Mennirnir áttu að hafa gengið í skrokk á
heimilisfólkinu, haft konu á brott með sér og
þvingað hana til að taka peninga út úr hraðbanka.
Síðan áttu þeir að hafa skilað konunni aftur. Þessi
frétt sló þjóðina alla. Enn og aftur heyrðum við í
fjölmiðlum fréttir af fólskulegu ofbeldi. En við
nánari eftirgrennslan DV virðist sem um tóman
uppspuna hafi verið að ræða.
Varnarlaus saman í rúmi
„Ég hef enga skýringu en hallast helst að því að
þeir hafi farið mannavillt. Það hlýtur bara að
vera,“ sagði Daníel, sem búsettur er á Kársnes-
brautinni í Kópavogi, síðdegis í gær. Hann stóð
fyrir utan lögreglustöðina í Kópavogi, ásamt vin-
konu sinni, og sagði sínar farir ekki sléttar eftir
árás handrukkara: „Ég hef verið edrú í þrjú ár og
ekki staðið í neinum fíkniefnaviðskiptum þannig
að varla geta þeir hafa verið að rukka fyrir þau.“
Daníel var nýbúinn að gefa lögreglu skýrslu og
var mikið niðri fyrir:
„Það er lítilmannlegt að ráðast svona að sof-
andi fólki. Þessir menn væru ekki til frásagnar
núna ef ég hefði komið að þeim í þessari stöðu. í
mínum huga eru þeir eins og peð á taflborði,"
sagði Daníel sem er vel að manni, hávaxinn og
spengilega vaxinn. Vinkona hans ber þess hins
vegar merki að hafa orðið fyrir áfalli.
„Enda fékk hún laugaáfall í gær,“ útskýrði
Daníel og átti við þann framburð sinn að
mennirnir hefðu - eftir að hafa gengið í skrokk á
þeim tveimur varnarlausum í rúminu heima á
Kársnesbraut - numið vinkonu hans á brott og
farið með hana að hraðbanka í hverfinu. Þar
hefðu þeir neytt hana til að tæma kortið sitt og
skilað henni svo aftur heim til Daníels. Henni var
að vonum brugðið. Eða svo sagði Daníel.
Saklausir handteknir
Um svipað leyti og Daníel og vinkona hans
gáfu skýrslu hjá lögreglunni í Kópavogi í gær voru
tveir meintra misyndismanna færðir til yfir-
heyrslu í sama húsi. Daníel þvertók ekki fyrir að
hafa þekkt mennina en neitaði því alfarið að hafa
átt eitthvað sökótt við þá; hvað þá að hann hefði
skuldað þeim fé: „Ég hef ekki einu sinni verið í
bænum undanfarin þrjú ár þannig að ég veit ekki
hvernig ég hefði átt að geta komið mér í þessi
vandræði. En þetta var djöfullegt."
Lygavefur
Við yfirheyrslu hjá lögreglunni í gær kom hins
vegar í ljós að ffásögn Daníels og vinkonu hans
reyndist tóm lygi. Þau urðu tvísaga, þrísaga og
jafnvel fjórsaga og ekkert gekk upp. Það sást ekki
einu sinni á þeim annað en lítilsháttar mar á
Daníel.
Sannleikurinn mun líka vera sá að einn maður
kom í heimsókn til þeirra skötuhjúa á Kársnes-
brautina til að innheimta skuld. Vinkona Daníels
fór með honum út í hraðbanka þar sem hún tók
út 15 þúsund krónur, greiddi honum og kvaddi
við svo búið. Eftir það virðist sem meint fórnar-
lömb þessarar fólskulegu árásar hafi spunnið upp
þann lygavef sem leiddi til handtöku tveggja
manna og leitar að þeim þriðja. Var mönnunum
sleppt strax og sannleikurinn kom í ljós. Nú er til
athugunar hvernig brugðist verður við lygi
Daníels og vinkonu hans en þau hafa bæði átt við
margvísleg vandamál að stríða. Enda bauðst
Daníel til að segja DV alla „söguna'1 fyrir 300
þúsund krónur.