Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2004, Side 9
UV Fréttir
FIMMTUDAGUR 15.JANÚAR2004 9
Réttarhöld yfir Mijailo Mijailovic hófust í Stokkhólmi í gær.
Vonaði ai) Anna LM lifði áránina nf
Mijailo Mijailovic, sem ákærður er fyrir morðið
á Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hélt
því fram fyrir rétti í gær að raddir í höfðinu hafi
sagt sér að ráðast á ráðherrann. Réttarhöld í mál-
inu hófust í gær. Mijailovic ruggaði sér fram og aft-
ur í stólnum þegar hann lýsti því þegar hann sá
Lindh koma inn í NK-verslunarmiðstöðina £ mið-
borg Stokkhólms þann 10. september sl. Hann
sagðist hafa verið „tilneyddur" að hlýða röddun-
um.
Lögmaður Mijaloivics, Peter Althin, segir skjól-
stæðing sinn hafa játað að hafa stungið Lindh en
hann neiti að hafa framið morð að yfirlögðu ráði.
Anna Lindh hlaut nokkur stungusár um stundar-
fjórðungi eftir að hún kom inn í verslunarmiðstöð-
ina og var Mijaloivic þar að verki. Hún lést af sár-
um sínum snemma næsta dag.
Mijaloivic segist hafa orðið áhyggjufuUur eftir
árásina og óttast um afdrif Lindh. „Ég vonaði að
hún lifði árásina af,“ sagði hann. Hann kvaðst jafn-
framt hafa verið í slæmu ásigkomulagi daginn ör-
lagaríka; hann hafi ekki fest svefn dögum saman.
Mijailovic þjáist af geðklofa og hafði verið í
meðferð vegna sjúkdómsins nokkru áður en hann
réðist á Lindh. Fram hefur komið að Mijailovic fór
vopnaður að heiman umræddan dag og var einnig
klæddur skotheldu vesti en hvort tveggja var að
hans sögn til að verjast árásum annarra.
Réttarhöldin vekja mikli athygli í Svíþjóð og
komust færri að en vildu í réttarsalinn. Fjöldi fólks
beið frá því í fyrrinótt við dómshúsið en sæti fyrir
almenning í réttarsalnum eru aðeins níu. Útvarp-
að var frá réttarhöldunum og var búist við að millj-
ónir manna myndu leggja við hlustir í gær þegar
Mijaloivic bar vitni.
Ráðgert er að réttarhöldunum ljúki snemma í
næstu viku. Mijailoivic á yfir höfði sér lífstíðarfang-
elsi verði hann sakfelldur fyrir morðið á Önnu
Lindh. Áður en dómur fellur mun Mijailovic fara í
ítarlega geðrannsókn.
Námsflokkar Hafnarfjarðar
Miðstöð símenntunar
Vorönn 2004 - Fjölbreytt og gagnlegt nám
• Tungumál.
• Handverks- og listgreinar
• (slenskunám fyrir útlendinga
• Tölvunám. Bókhald og rekstur
• Ýmis frístundanámskeið
• Starfsnám og starfstengd námskeið Háskólann á Akureyri
• Sérsniðin námskeið fyrir fyrirtæki
og stofnanir
Innritun á vorönn 2004 fer fram 19.-23. jan. KI13-19
á skriftofu Námsflokkanna v/skólabraut (gamla Lækjarskólahúsið), þar sem allar nánari uppl. eru veittar.
Sími 585 5860 Vefslóð: www.namsflokkar.hafnarfjordur.is
• Námskeið fyrir nemendur í lO.bekk
grunnskóla
• Prófáfangar í samvinnu við
Flensborgarskóla
• Símenntunarnámskeið
fyrir kennara
• Fjarnám í samstarfi við