Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2004, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2004, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004 Fréttir 0V Með eitt auga Þessi kiðlingur kemst í sögubækur enda ekki á hverjum degi sem dýr fæð- ast með aðeins eitt auga. Rose Magubane, íbúi í bænum Folweni í Suður- Afríku, heldur á nýfæddu dýrinu. Honum var gefið nafnið Umlingo sem merk- ir kraftaverk. Örlög Umlin- gos voru hins vegar ekki kraftaverki líkust því hann var felldur af dýralækni sem sagði hann ekki eiga neina möguleika á að kom- ast á legg. Hvítir sokkar bannaðir Starfsmenn hollenska ijármálaráðuneytisins geta gleymt því að mæta í vinnuna í hvít- um sokkum. Slíkur fatnaður hefur nefnilega verið bannaður enda þykja sokkar af þessu tagi „óvirðuleg- ir" eins og einn embættismaður ráðuneytisins orðaði það. Karlmenn eru jafnframt hvattir til að velja jakkaföt við hæfi. Grætti skólabörn Philip prins grætti fjölda barna þegar hann skaut úr frethólki sínum nærri skólalóð í Sandringham. Drottningarmaðurinn var á fasanaveiðum og lét frímín- útur í skólanum ekki stoppa sig. Börnin horfðu skelfingu lostin á aðfarir prinsins og brustu mörg þeirra í grát. Dauðir fasanar féllu hver af öðrum og að minnsta kosti einn féll til jarðar á skólalóðinni. Magnús Pétursson, forstjóri Landspítalans Magnús þykir alþýðlegur í framkomu, mannblendinn og á auðvelt með að hrífa fólk með sér, sem er ákaflega góð- ur kostur stjórnanda. Hann er orðheldinn og ákaflega vinnu- samur og hlífir sér ekki. Fram- úrskarandi sáttasemjari. Kostir & Gallar Leggur stundum ofhart að sér og er þá sjálfum sér verstur. Krefst hins sama afundir- mönnum sínum og gerirþá oft óraunhæfar kröfur um vinnusemi og árangur. Treystir öllum og stundum ofmikið - þarfað læra að þekkja óvini sína betur. Þjóðskráin er aðgengileg öllum á netinu. Ekki er mögulegt að fá að leyna heimilis- fangi sínu. Lögreglumenn hafa gert athugasemdir við þetta og telja bæði öryggi sínu og fjölskyldu ógnað. Lög í hinum Norðurlöndunum gefa hættu á líkamlegu of- beldi eða ofsóknum ástæðu til þess að heimilisfang sé ekki birt. Hættulegt að birta heimilisfang í þjoöskra „Það er slæmt að eiga ekki möguleika á því að geta leynt heimilisfangi sínu í þjóðskrá," segir Sig- rún Jóhannesdótúr, forstjóri Persónuverndar. „Þú getur sótt um leyninúmer eða einfaldlega sleppt því að vera í símaskránni en þú ræður engu um það að heimilisfang þitt birtist alþjóð á netinu." Fjöldi fyrirspurna hafa borist til Persónuverndar í gegnum árin varðandi þetta mál. „Þrátt fyrir að ýmsir hafi gert athugasemdir hefur engu máli lokið með bindandi úrskurði." Lögreglumenn vilja aukið öryggi Hallgrímur Snorrason, Hagstofustjóri, segir að ýmsir hafi fært í tal hvort ekki sé hægt að leyna heimilsfangi þeirra í þjóðskránni. „Lögreglumenn hafa oft áhyggjur af því að öryggi bæði þeirra og fjölskyldu geti verið stefnt í hættu með að birta heimilisfang þeirra alþjóð á netinu,“ segir Hallgrím- ur en bendir á að í lögum sé þjóðskráin opið gagn og ekki sé litið á heimilsföng sem leyndar- mál. „Það er líka spurning hvort laga- ákvæði af þessu tagi kæmu að gagni í svona litlu samfé lagi." Geir Jón Þóris- Hallgrímur Snorrason „Lögreglumenn hafa oft áhyggjur afþvi að öryggi bædi þeirra og fjölskyldu geti verið stefnt i hættu með að birta heimilisfang þeirra alþjóð á netinu." son, lögreglustjóri, segir að þessi umræða sé vissulega mikilvæg. „Það er til dæmis mjög óeðlilegt að við lögreglumenn þurf- um að gefa upp nafn, kennitölu og heimilis- fang þegar við mæt- um fyrir dóm,“ segir Geir. „Birting heimil- isfanga á netinu snýst auðvitað um hið sama. Geir Jón Þórisson „Ef hægt Ff hæpf er að levna erað leyna numerum i sima- " , ® \ , skrá þá ætti að vera hægt að numerum 1 simaskra /eyno heimilisföngum íþjóð- þá ætti að vera hægt skrá.“ að leyna heimilisföng- um í þjóðskrá." Drífa Snædal hjá kvennaathvarfinu segir að þær konur sem leiti til þeirra hafi þurft að þola ofsóknir og ofbeldi. „Vissulega veit ég um konur sem myndu taka það fegins hendi að geta leynt heimil- isfangi sínu," segir Drífa. „Ein leiðin sem konur geta farið er að búa ekki á sama stað og þær eru með skráð lögheimili." Heimilisfangið varð henni að falli Sigrún Jóhannesdóttir segir að í lögum um Persónuvernd sé heimilt að andmæla birtingu persónuupplýnga ef eðlilegar og knýjandi ástæð- ur eru til staðar. Ef þannig aðstæður komi upp eigi því að vera tekið tillit til slíkra óska. „Ég man til dæmis eftir máli sem kom upp í Svíþjóð fyrir nokkrum árum," segir Sigrún. „Kona sótti um að leyna heimilisfangi sínu vegna ofsókna fyrrver- andi eiginmanns. Það var samþykkt að birta ekki heimilisfang hennar en fyrir slysni gleymdist að fjarlægja það úr þjóðskránni. Mað- Það er hins vegar al- varlegt mál að eiga að minnsta kosti ekki möguleika á því að leyna heimil- isfangi í þjóðskrá ef alvarlegar og knýj- andi ástæður búa að baki." Endurgreiðslur til þeirra sem greiddu fullu verði Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar „Hér heima snýst þetta aðallega um netbirtinguna á þjóð- skránni." urinn fann hana, gekk í skrokk á henni, og skildi hana svo eftir nær dauða en lífi." Netið er áhrifavaldurinn í Noregi er hætta á líkamlegu ofbeldi eða of- sóknum talin gild ástæða úl að leyna heimilisfangi sínu í þjóðskrá. „Hér heima snýst þetta aðallega um netbirtinguna á þjóðskránni," segir Sigrún og leggur áherslu á að ekki sé verið að tala um að leyna upplýsingum fyrir þeim sem þurfa að hafa aðgang að þeim. Þjóðskráin sé til dæmis bráðnauðsynleg fyrir ýmsa opinbera starfsmenn. „Það er hins vegar alvarlegt mál þegar öU þjóðin hefur aðgang að þjóðskránni á netinu að ntaður eigi að minnsta kosú ekld möguleika á því að leyna heimilisfangi ef alvarlegar og knýjandi ástæður búa að baki." Sorglegt ef ekki ríkir traust íslenskt samfélag hefur breyst heUmikið á síð- ustu árum. Bankarán eru tíð og aðferðir handrukk- ara verða æ hrottafengnari. Þættir eins og „dóp- stríðið“ sýna okkur að erlendur veruleiki er ekki lengur jafn fjarlægur og áður. Hallgrímur Snorra- son bendir því á að nauðsynlegt sé að horfa á hlut- ina í stærra samhengi. „Þjóðfélagið í dag er opið og ákveðið traust ríkir á miUi manna. AUar hugmynd- ir um að einhver hluti samfélagsins hafi aðgang að upplýsingum en aðrir ekki eru því að mínu mati út í hött,“ segir HaUgrímur. „Það væri líka sorglegt ef samfélagið væri að breytast á þann veg að við get- um ekki lengur treyst hvoru öðru.“ simon@dv.is Skýrist í dag hvort TR greiðir til baka SérfræðilæknadeUan leystist í fyrrakvöld þegar félagsfundur í Læknafélagi Reykjavíkur samþykkti samkomulag sem gert var síðdegis á þriðjudag af hálfu samninganefndar heilbrigðis-og tryggingamálaráð- herra og samninganefndar LR. í samkomulaginu felst meðal annars að einingaverðið sem liggur til grundvallar greiðslum til lækna hækkar um 3% og verður 206 krón- ur, afsláttarkerfi lækna verður breytt og læknum verður heimilt að segja sig af samningi við Tryggingastofn- un ríkisins með styttri fyrirvara en áður og starfa utan samnings í tvo mánuði á ári. Heilbrigðismálaráð- herra og formaður samninganefnd- ar lækna hafa báðir lýst yfir ánægju r allBBt'W með að samkomulag skuli hafa ver- ið gert. Ráðherra hefur ennfremur lýst því yfir að hann muni gera það sem í hans valdi stendur til að þeir sjúklingar sem greiddu fullt verð fyr- ir þjónustuna áður en samið var fái endurgreitt frá Tryggingastofnun. f því skyni hyggst hann fara með mál- ið inn á ríkisstjórnarfund. Karl Steinar Guðnason forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins er ánægður með að deilan við sér- greinalæknana skuli vera leyst. Hann segir það vera til meðferðar í ráðuneytinu hvort stofnunin greiði þeim sjúklingum til baka sem greiddu þjónustuna fullu verði frá áramótum. Það verði ljóst í dag. „Við förum aðeins að lögum í þeim efn- um og ef það verður ákveðið af stjórnvöldum að greiða þeim sjúk- lingum til baka munum við gera það,“ segir hann. Karl Steinar segist vera þeirrar skoðunar að betra sé að semja til lengri tíma eins og tíðkist í atvinnu- lífinu og vill beita sér fyrir því að þannig verði það í framtíðinni. Gunnar Ármannsson fram- kvæmdastjóri Læknafélags Reykja- víkur telur að hagsmunum allra sé vel borgið með þessum samningum. Karl Steinar Guðnason Hann vill stefna að þvl að samningar við sérgreinalækna gildi i lengri tima eins og tiðkast i atvinnulifinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.